Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú.
Verði áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta að veruleika verða embætti lögreglunnar á Suðurlandi, Austurlandi og í Vestmannaeyjum sameinuð í eitt. Embættið mun ná allt frá Bláfjöllum að Vopnafirði. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar og Fjarðabyggðar hafa ályktað gegn áformunum.
Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja, segir að sérstaða Vestmannaeyja sem eyjasamfélags, með tilliti til samgangna og almannavarna, kalli á sjálfstætt lögregluembætti.
„Við erum bara ekki að sjá að það geti hentað Vestmannaeyjum að vera ekki með lögreglustjóra. Svo verðum við eiginlega bara að líta til sögunnar að það var út af sérstöðu okkar að lögregluembætti er í Vestmannaeyjum,“ segir Eyþór.
Of drastískt
Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, segir áformin vanhugsuð bæði vegna þess hve landshlutarnir séu ólíkir og vegna vegalengda.
„Okkur skilst að embættið ætti þá að vera á Selfossi. Þetta er átta klukkustunda fjarlægð. Þetta er bara of drastískt,“ segir Ragnar.
Hann segir að Fjarðabyggð hugnist frekar sameining lögregluembættis Austurlands við embættið á Norðurlandi eystra.
„Það væri mun nær að halda sig við Norðausturkjördæmi og sameina þá lögregluembætti þar. Við teljum okkur eiga mun betur heima þar. Ekki það að okkur þyki ekki vænt um nágranna okkar á Suðurlandi, en við teljum það bara vera miklu líkari starfsemi sem fer þar fram og einnig eigum við þegar í miklu meira samstarfi innan kjördæmisins.“
Fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja