Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna.
„En til þess að geta lagað það sem stendur ekki nógu vel er auðvitað nauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum svo maður geti mælt sjálfan sig og sinn árangur til framtíðar og notað þær sem viðmið um það hvort að þær aðgerðir sem maður grípur til skili árangri eða ekki,“ segir Unnur Brá en hún var til viðtals á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Hún hafi óskað eftir niðurstöðum PISA-kannana fyrir báða grunnskólana í Borgarbyggð, Grunnskóla Borgarfjarðar og Grunnskólann í Borgarnesi. Því hafi hins vegar verið hafnað á grundvelli smæðar sveitarfélagsins og að niðurstöðurnar gætu reynst persónugreinanlegar upplýsingar. Í kjölfarið hafi hún vísað málinu til kærunefndar um upplýsingamál.
Sveitarfélagið beri ábyrgð
Sveitarfélagið sé ekki að óska eftir persónugreinanlegum upplýsingum um nemendur heldur séu niðurstöðurnar um færni nemenda lykillinn að árangri.
„Við erum einfaldlega að biðja um þær upplýsingar sem geta hjálpað okkur að sjá hvar við stöndum. Við ætlum ekki að nota þetta til að skamma einhvern eða bera okkur saman við aðra skóla heldur einfaldlega líta í eigin barm. Við berum ábyrgð á okkar börnum,“ segir Unnur.
Ráðuneytið hafi hins vegar birt niðurstöður sjö stærstu sveitarfélaganna á landinu. Það eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Reykjanesbær og Akureyri.
Í svarinu sé vísað til þess að gögnin séu aðgengileg á vef OECD. Unnur segir slíkt verkefni kosta fjármuni og að hún vilji verja fjármunum til menntamála í annað en þessa vinnu.
„Ég geti farið að sækja þau þar, það er að segja þá fyrir stærra svæði og farið í einhverja gagnavinnslu með einhverjum leyfum sem þarf til þess. Það kostar auðvitað fjármuni sem sveitarfélagið hefur kannski ekki á lausu,“ segir Unnur.
Segir málið alvarlegt
Það skjóti skökku við að menntamálaráðuneytið geti útvegað sjö stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki landsbyggðinni.
„Það er alvarlegt og þess vegna vísaði ég málinu til kærunefndar um upplýsingamál.“
Hvorki verið að óska eftir sérmeðferð né forréttindum
Sveitarfélögin eigi erindi í umræðuna um menntamál og niðurstöður PISA-kannana. Rætt sé við kennara og ríkisstjórnarmeðlimi en ekki sveitarfélögin.
„Það eru auðvitað sveitarfélögin sem annast framkvæmdina. Við í rauninni berum ábyrgðina gagnvart fólkinu og við eigum auðvitað að fá tæki og tól frá stjórnvöldum til þess að bregðast við og gera betur.“
Hún vonast eftir skjótri úrlausn málsins og segir Borgarbyggð ekki vera að óska eftir sérmeðferð.
„Við erum ekkert að biðja um nein forréttindi, við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð. Við erum einfaldlega bara að biðja um að fá gögn þannig að við getum staðið jafnfætis þessum sjö stærstu sveitarfélögum á Íslandi og fá tækin og tólin til þess að gera betur.“