Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkjaforseti kaupi dísileldsneyti af Rússum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti samdi við Rússa um kaup á átján hundruð þúsund tonnum af dísilolíu næstu þrjá mánuði.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti gagnrýndi samkomulagið harðlega. Hann sagði að með þessu fengju Rússar aukið fjármagn til stríðsreksturs í Úkraínu.
Trump sagði enn fremur í dag að Rússland og Úkraína hefðu gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.
Zelensky segist þó ekki kannast við slíkt samkomulag. Hann segir að Rússar hafi ráðist á úkraínskt orkuver eftir að það átti að hafa tekið gildi.
Erlingur segir að verð á dísil í Bandaríkjunum sé tvöfalt hærra en það var fyrir ári.
„Það er fyrst og fremst út af Íransstríðinu misráðna sem hann fór út í,“ segir hann.
Erlingur bendir á að magnið af dísil sem samið var um sé aðeins um tíu daga skammtur fyrir bandaríska hagkerfið. Útspilið er að hans mati tengt komandi þingkosningum í Bandaríkjunum.
„Það er ekki líklegt að þetta breyti verðinu. Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu.“
Trump hefur verið Zelensky reiður vegna árása Úkraínu á rússneska olíuinnviði sem hann segir að hækki eldsneytisverð.
Hann sagði í gær að hann vildi að Úkraínumenn veldu sér annan forseta sem gæti bundið enda á stríðið við Rússland.
Erlingur segir að Trump hafi vitanlega tekið ítrekaða afstöðu með Rússlandi í stríði þeirra við Úkraínu.
„Ég held að undir liggi að hann hreinlega sé ekki aðdáandi Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta. Það á sér langa sögu. Hans tilhneiging er yfirleitt að taka afstöður sem eru Rússum vilhollar í þessari styrjöld. Við höfum séð það trekk í trekk og það er auðvitað áhyggjuefni.“