Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti árið 2005 til fjögurra ára en hefur setið við völd allar götur síðan án þess að nýjar forsetakosningar hafi farið fram.
Abbas hefur samkvæmt frétt Reuters frestað þingkosningum, sem áttu að fara fram 28. nóvember næstkomandi, til 11. september 2027. Samkvæmt tilkynningunni eiga forsetakosningar einnig að fara fram þann dag.
Ákvörðunin kemur jafnframt fram á opinberri vefsíðu palestínska forsetaembættisins.
Engar þingkosningar í tvo áratugi
Síðustu þingkosningar Palestínumanna fóru fram árið 2006 þegar Hamas vann meirihluta þingsæta. Ári síðar náðu samtökin völdum á Gaza eftir átök við Fatah-hreyfingu Abbas.
Abbas var sjálfur kjörinn forseti árið 2005, eftir andlát Yassers Arafat. Fjögurra ára kjörtímabili hans lauk árið 2009 en hann hefur haldið völdum síðan og stjórnað að verulegu leyti með forsetatilskipunum.
Verði kosningarnar haldnar á nýjum dagsetningum verða því liðin rúm 22 ár frá síðustu forsetakosningum og meira en 21 ár frá síðustu þingkosningum.
Kennir Ísrael um frestunina
Abbas segir að aðgerðir Ísraela og ótryggt öryggisástand á Gaza, Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem geri erfitt að tryggja frjálsar og sanngjarnar kosningar.
Hann vísar meðal annars til hernaðaraðgerða, takmarkana á ferðafrelsi, landnemabyggða og erfiðleika við að koma kosningabúnaði og eftirlitsaðilum til Gaza.
Ísraelski utanríkisráðherrann Gideon Sa’ar hafnar þessum skýringum og sakar Abbas um að reyna enn einu sinni að komast undan pólitískri ábyrgð.
Lofaði kosningum fyrir aðeins tveimur vikum
Athygli vekur að Abbas hafði í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 24. september síðastliðinn ítrekað áform um að halda þingkosningarnar í nóvember.
Hann hafði jafnframt skuldbundið sig til að halda forseta- og þingkosningar sem hluta af pólitískum umbótum í tengslum við alþjóðlegar viðræður um framtíð palestínsks ríkis.
Nú, aðeins rúmum tveimur vikum síðar, hefur kosningunum verið frestað um tæpa tíu mánuði.
Samkvæmt Reuters höfðu fulltrúar Fatah og Hamas þegar náð samkomulagi um frestunina á fundi í Kaíró í síðustu viku.