S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulagið var undirritað á Kirkjubólsvelli í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samfylkingin sleit samstarfi við D-lista Sjálfstæðisflokksins og óháðra síðasta sunnudag vegna trúnaðarbrestar, fjórum mánuðum eftir að flokkarnir mynduðu meirihluta eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Óformlegar viðræður Samfylkingarinnar og Framsóknar hófust í vikunni og á fimmtudag var greint frá því að flokkarnir væru búnir að hefja formlegar meirihlutaviðræður.
Alexandra áfram bæjarstjóri
Samkvæmt tilkynningu flokkanna verður Svavar Grétarsson áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknar, tekur við embætti forseta bæjarstjórnar. Alexandra Jóhannesdóttir mun áfram gegna embætti bæjarstjóra.
Samfylkingin hefur þrjá fulltrúa í níu manna bæjarstjórn Suðurnesjabæjar og Framsókn tvo. Flokkarnir hafa því saman fimm fulltrúa og eins manns meirihluta.
Í tilkynningu flokkanna segir að undanfarnir dagar hafi einkennst af pólitískri óvissu og að með nýju samstarfi vilji þeir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins.
Ábyrg fjármálastjórn, uppbygging innviða og bætt þjónusta við íbúa verði meðal helstu áherslumála nýs meirihluta.
Sérstök áhersla verði lögð á uppbyggingu íþróttamannvirkja, skóla- og leikskólamál, þjónustu við eldri borgara og uppbyggingu hjúkrunarheimilis í samstarfi við ríkið.
Einnig hyggjast flokkarnir vinna að bættum samgöngum, framtíð Sandgerðishafnar og uppbyggingu Miðjunnar.
Stefnt er að því að skapa svigrúm til lækkunar á álögum á íbúa og fyrirtæki eftir því sem fjárhagur sveitarfélagsins leyfir.