Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir þá merkilegan hluta af sögu lýðveldisins.
Eftir áratuga þjónustu var mörg hundruð kjörkössum úr timbri stungið í geymslur sveitarfélaga, og þar hafa þeir síðan beðið örlaga sinna.
Landskjörstjórn vildi halda í gömlu kassana á meðan plastið yrði prufukeyrt - en nú er orðið ljóst að tími viðarins er liðinn. Sveitarfélögin voru hvött til að koma þeim til nýtingar, en fengu eins leyfi til að farga þeim.
Sérstaklega er horft til skóla, félagasamtaka og annarra sem gætu nýtt kassana í kosningar. Söfn víða um land hafa varðveitt aldagamla kjörkassa og sum ætla að taka við fleirum.