Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir

Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir

Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir

Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar hún var aðeins þriggja ára en það var ekki fyrr en árið 2024 sem hún fékk greiningu.

OCD er geðröskun sem einkennist meðal annars af endurteknum og óvelkomnum hugsunum, hugarmyndum eða hvötum sem geta valdið miklum kvíða og vanlíðan. Einstaklingar með röskunina geta einnig fundið fyrir sterkri þörf til að framkvæma ákveðnar athafnir eða fylgja tilteknum reglum til þess að draga úr vanlíðan. Þótt margir tengi OCD fyrst og fremst við þrif, hreinlæti eða stanslausa þörf fyrir skipulag þá getur röskunin birst með ýmsum hætti, og einkennin eru ekki alltaf sýnileg öðrum.

Dagana 11. til 17. október fer fram alþjóðleg vitundarvika um áráttu og þráhyggjuröskun, eða OCD. Í tilefni hennar ákvað Andrea að segja opinberlega frá reynslu sinni og birti færslu á TikTok þar sem hún rakti sögu sína. Með frásögninni vonast hún til að auka skilning á röskuninni og hjálpa öðrum sem glíma við sambærileg einkenni.

Óttaðist froðu þriggja ára gömul

Elstu minningar Andreu um einkennin tengjast ótta við froðu.

„Ég hef alltaf verið með þessa minningu, um að vera með fóbíu fyrir froðu. Síðan fannst vídeó fyrir nokkrum árum þar sem ég er þriggja ára og er að horfa á bróður minn í froðubaði. Ég segi: „Ég vil ekki fara í svona.“ Og mamma segir: „ Já, ég veit það, þú vilt ekki fara í froðubað.“ Þannig að þarna byrjar þetta.“

Frá unga aldri var Andrea einnig mjög matvönd og borðaði meðal annars hvorki ávexti né grænmeti. Síðar átti óttinn við ákveðnar fæðutegundir eftir að verða stór hluti af þeirri meðferð sem hún fór í vegna OCD. Þegar hún var komin í sjötta bekk í grunnskóla fór hún að forðast yngri bróður sinn þar sem hún upplifði hann, og hluti sem hann hafði snert, sem „ óhreina.“

Fyrstu einkenni Andreu birtust meðal annars í miklum ótta við froðu og ákveðnar fæðutegundir.Aðsend

„Þetta hafði gríðarlega mikil áhrif á daglegt líf. Ég forðaðist bróður minn og vildi ekki að fólk kæmi inn í herbergið mitt. Það mátti ekki þrífa inni hjá mér, koma við dótið mitt eða sitja á stólnum mínum. Annars gat ég orðið ógeðslega reið. En ég talaði ekkert upphátt um hugsanirnar. Fólk sá hegðunina hjá mér, en vissi ekkert endilega hvað var á bak við hana.“

Opin dós gat tekið yfir athyglina

Grunnskólaárin gengu að mestu ágætlega en í framhaldsskóla komu upp aðstæður sem reyndust Andreu erfiðar. Þar á meðal voru opnar gos og orkudrykkjadósir sem samnemendur hennar höfðu á borðunum í kennslustundum. Óttinn við að innihaldið myndi hellast yfir hana gerði það að verkum að hún átti erfitt með að einbeita sér að öðru.

Andrea lýsir því hvernig hversdagslegar aðstæður, sem flestir leiða varla hugann að, gátu valdið henni verulegri vanlíðanAðsend

„Þá fór ég alltaf að fókusera á dósina, ég bara varð að passa að hún dytti ekki á mig. Ég passaði líka að hafa töskuna mína ekki þeim megin sem dósin var, heldur frekar þar sem enginn var. Þetta voru alltaf svona mjög litlir hlutir sem tóku rosalega stórt pláss í huganum á mér.“

Möguleikinn á OCD hafði verið nefndur við Andreu áður en hún fékk greininguna en hún hafnaði honum. Í hennar huga snerist röskunin fyrst og fremst um ákveðnar endurteknar athafnir, eins og að stíga ekki á strik eða kveikja og slökkva ljós þrisvar sinnum í hvert skipti. Hún kannaðist ekki við sjálfa sig í þeirri lýsingu.

Ég var ekkert að tala um þetta af því að ég vissi ekkert hvað fólk ætti þá eftir að segja. Ef ég gat ekki snert eitthvað gat fólk sagt: „Af hverju snertirðu þetta ekki bara? Hvað er að þér?“ En ég bara gat það ekki.

Auk þess að óttast ákveðna hluti þá hefur Andrea glímt við ágengar hugsanir um meðal annars ofbeldi og kynferðislegar athafnir. Hugsanirnar geta komið upp fyrirvaralaust, hvort sem hún er í skólanum, vinnunni eða úti að ganga, og snúast um hluti sem hún hefur alls engan áhuga á að gera.

„Ég sé kanski hníf, og mamma mín stendur einhvers staðar nálægt, og þá hugsa ég: „Stingdu hana.“ Og þá kemur strax upp önnur hugsun: „Nei, nei, nei, mig langar það ekki neitt.“ Ég hef engan áhuga á því en heilinn minn er sannfærður um það. Hann er bara: „Jú, þú vilt gera þetta.“ Sérstaklega áður en ég var greind var ég bara: „Hvað er að mér? Er ég vond manneskja?“

Brast í grát hjá sálfræðingi

Það var árið 2024 sem Andrea fékk loks skýringu á einkennunum. Hún var þá í viðtölum hjá sálfræðingi vegna annarra mála og fór í mat þar sem meðal annars var fylgst með viðbrögðum hennar við ákveðnum hlutum og matvælum.

„Í einu prófinu sem var gert þá fór ég bara að gráta. Þá varð náttúrulega svolítið augljóst að þarna var eitthvað mikið í gangi. Hún ákvað svo að senda mig á OCD-námskeið. Ég ákvað að fara á það og það breytti rosalega miklu fyrir mig. Það var ekki þannig að ég væri bara allt í einu læknuð, heldur lærði ég loksins hvað ég væri að glíma við og hvernig ég gæti unnið með það.“

Á námskeiðinu var lögð áhersla á að takast smám saman á við það sem Andrea hafði forðast árum saman. Þar kom meðal annars aftur við sögu óttinn við froðu auk þess sem hún þurfti að vinna með óhreina diska og ýmsa ávexti. Hún gantast með að þetta hafi að mörgu leyti verið eins og á leikskóla.

„Þarna var maður að gera allskonar hluti sem fyrir flestum eru algjörlega hversdagslegir, en fyrir mig var þetta bara eitt það erfiðasta sem ég hef gert.“

Andrea ákvað að sega frá reynslu sinni á TikTok í tengslum við alþjóðlega vitundarviku OCD, sem stendur yfir dagana 11. til 17. október.Aðsend

Hugsanirnar eins og þrumuský

Eitt af því sem Andrea tók með sér af námskeiðinu var einföld myndlíking um ágengar hugsanir sem hefur reynst henni vel. Með henni lærði hún að leyfa ágengum hugsunum að koma, og fara.

„Það kemur þrumuský og það er vont veður. Síðan líður það hjá og það kemur sól aftur. Mér fannst rosalega gott að hugsa um þetta þannig. Bara að muna: Þetta líður hjá. Hugsunin þarf ekki að þýða neitt meira en það að hún kom.“

Auk námskeiðsins tekur Andrea lyf sem hafa hjálpað henni. Röskunin er þó enn til staðar og suma daga reynist erfiðara en aðra að nýta sér aðferðirnar sem hún hefur lært.

„Ég er á lyfjum og þau hjálpa. Svo hefur námskeiðið kennt mér hvað ég get gert þegar ég fæ þessar hugsanir og hvernig ég get reynt að komast fram hjá þeim. Markmiðið er að gera það sem mig langar til að gera í staðinn fyrir það sem OCD-ið vill. En það koma líka dagar þar sem ég gefst upp og leyfi hugsununum að vinna. Ég reyni samt alltaf mitt besta.“

Erfiðleikar við að losa sig við hluti hafa einnig fylgt Andreu. Í bílskúr fjölskyldunnar eru kassar af dóti sem hún þarf nú að fara í gegnum flutninga.

„Ég fæ rosalega mikla tilfinningalega tengingu við hluti sem ég þarf ekkert að eiga. Ég held líka að ég sannfæri mig um að ég muni þurfa þá. Ég átti til dæmis penna sem virkaði ekki en ég var samt sannfærð um að ég þyrfti þennan penna. Sama með föt sem ég mun aldrei nota aftur, passa ekki á mig og eru ekki einu sinni minn stíll lengur. Samt er ég bara: „Nei, ég verð að eiga þetta. Munurinn er kannski sá að aðrir eiga einn eða tvo svona hluti en ég finn þessa tengingu við allt.“

Fékk skilaboð frá ókunnugu fólki

Viðbrögðin við TikTok-færslunni urðu meiri en Andrea hafði átt von á. Hún fékk meðal annars persónuleg skilaboð frá fólki sem þakkaði henni fyrir að segja frá og lýsti því hvað það væri gott að vita að aðrir glímdu við sambærilega erfiðleika.

„Mér finnst mjög erfitt að opna mig en ég hugsaði einhvern veginn: „Af hverju ekki? Hvað er það versta sem getur gerst?“Ég vil miklu frekar reyna að hjálpa öðrum. Svo fór ég að fá persónuleg skilaboð frá ókunnugu fólki sem var bara: „Takk fyrir að deila, mér finnst svo gott að vita að ég sé ekki ein. Þá fannst mér þetta eiginlega alveg þess virði. Ég sé alls ekki eftir því að hafa birt færsluna.“

Með því að stíga fram vill Andrea vinna gegn ranghugmyndum um OCD og vekja athygli á því að röskunin getur birst á mun fjölbreyttari hátt en margir gera sér grein fyrir.Aðsend

Móðir Andreu tók þátt í fræðsluhluta OCD-námskeiðsins þar sem aðstandendum var meðal annars kennt hvernig hægt væri að styðja þá sem glíma við röskunina. Andrea leggur mikla áherslu á að fólk sýni erfiðleikunum skilning og nefnir sem dæmi hversu miklu það hafi skipt að fá hvatningu til að takast á við verkefnin á námskeiðinu í stað þess að heyra að hún ætti einfaldlega að láta sig hafa það.

„Mér finnst rosalega mikilvægt fyrir fólk sem er ekki með OCD að vita hvað þetta er og geta hjálpað. Það skiptir miklu máli að fá stuðning frá fólki í kringum sig. Það hjálpar miklu meira að fá að heyra:“ Vel gert, þú ert að gera þitt“ heldur en: „Gerðu þetta bara.“ Sumir eiga mjög erfitt með að skilja þetta. En maður þarf ekki endilega að skilja allt til að geta stutt manneskjuna.“

#lifði #með #saman #árum #ótta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262947008d/lifdi-arum-saman-med-otta-sem-enginn-skildi

📰 Aðrar fréttir

Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 1
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 1
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 2
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 2
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 3
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 3
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 4
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
📅 11.10.2026 👁️ 3
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
Police received credible information about possible attacks against Donald Tusk and his defence minister.
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 4
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 4
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 4
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 5
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 6
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 3
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera till...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 4
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
📅 11.10.2026 👁️ 4
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu...
Trump says Ukraine and Russia have agreed 'energy ceasefire'
📅 11.10.2026 👁️ 1
Trump says Ukraine and Russia have agreed 'energy ceasefire'
Zelensky says Kyiv would support such a truce. Moscow has yet to comment.