Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir.
Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Seyðisfjarðar, segir í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna. Stendur til að afhenda Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirskriftirnar á morgun.
Meðal þeirra samtaka sem stóðu að mótmælunum má nefna Landvernd, félög sem berjast fyrir villta laxastofninum á Íslandi, og Vá, félag um vernd fjarðar, auk Katrínar Oddsdóttur lögmanns.
„Ég trúi því að það sé mjög, mjög mikilvæg stund í íslenskri náttúruverndarsögu akkúrat núna og að það sé ákaflega mikilvægt að við sjáum sem flesta á báðum stöðum til að reyna að sporna við því að það verði nokkurn tímann sjókvíaeldi á Seyðisfirði,“ sagði Katrín í samtali við Vísi sem birtist fyrr í dag.
Katrín segir að miklir annmarkar séu á leyfisveitingum og að afgerandi meirihluti heimamanna sé mótfallinn sjókvíaeldinu.
„Málið snýst því ekki aðeins um framtíð eins fjarðar, heldur einnig um það hvaða fordæmi verður skapað fyrir önnur samfélög á Íslandi sem vilja standa vörð um náttúru sína og framtíð komandi kynslóða,“ segir í tilkynningunni.
Sjá einnig: Hafi verið beggja vegna borðsins