Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife Park í gær. Tígrisdýrið hafði ráðist á manninn og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.
Í yfirlýsingu frá garðinum segir að tígrisdýrið Altai sé heilt á húfi og muni ekki vera aflífað vegna atviksins. Garðinum hafi verið lokað í dag og starfsfólk fengið áfallahjálp.