Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna meira á en síendurtekið rafmagnsleysi. Það nísti hjartað að sjá eyðilegginguna í borginni.
„Staðan í Kyiv er erfiðari en nokkurn tíma áður,“ segir Tanya. „Þegar stríðið hófst 2022 vissum við að það væri mjög slæmt. Það sem er að gerast núna er þó miklu verra en þá,“ segir hún í viðtali við fréttastofu.
Tanya flýði til Íslands þegar stríðið hófst, bjó hér í tvö ár og aðstoðaði landa sína á flótta. Nú býr hún í Kyiv og hefur eins og aðrir borgarbúar þurft að aðlagast afleiðingum stríðsins. Ein þeirra er slitrótt rafmagn vegna árása Rússlandshers á orkuinnviði
Rafmagni sé skipt niður á hverfin eftir ákveðnu skipulagi en stundum gangi skipulagið ekki upp. „Fólk veit því oft ekki hvort það eigi eftir að geta þvegið, hafi rafmagn og geti hlaðið raftækin sín, símann og annað,“ segir hún.
Hún hefur komið sér upp öflugum hleðslubanka og kveðst lánsöm að eiga gaseldavél. Þá er hún með ljósaperu sem hún keypti á Íslandi sem hægt er að hlaða og grípur til hennar ef það er rafmagnslaust á kvöldin.
Drónaárás á næsta hús
„Stærsta vandamálið núna eru þó stöðugar drónaárásir. Þær eru skelfilegar,“ segir Tanya. Fólk fær viðvaranir í appi um að árás sé yfirvofandi og að það eigi að leita skjóls. Þetta sé ekki aðeins einn klukkutími á dag og að dagarnir séu misslæmir. „Það þýðir að rútína fólks og allt sem það er vant að gera fer úr skorðum.“
Í sumar fékk Tanya tilkynningu í símann um að árás væri yfirvofandi og var óviss hvort hún ætti að leita skjóls á nærliggjandi leikskóla eða í bílakjallara. Hún býr í gömlu fimm hæða húsi þar sem ekkert neyðarskýli er í kjallaranum. Sprengjan lenti á næsta húsi.
„Ég vissi að ég hefði tvær mínútur þar til flaugin myndi hæfa borgina en vissi ekki nákvæmlega hvar hún myndi lenda. Ég stóð því í hurðinni og var mjög hikandi og óviss hvað ég ætti að gera. Ætti ég að fara í bílastæðakjallarann? Eða vera kyrr heima? Þessar sekúndur sem ég hikaði urðu til þess að ég lifði af.“ Ef hún hefði hætt sér út í bílakjallarann væri hún ekki til frásagnar.
Tanya segir suma borgarbúa frekar kjósa að skýla sér heima fyrir sprengjunum en að fara út í næsta sprengjuvarnarskýli. Til dæmis leiti margir skjóls á baðherbergjum þar sem þau séu oft gluggalaus.
Það séu þó enn margir sem leiti skjóls á jarðlestarstöðvum, sérstaklega barnafjölskyldur. „Fólk tekur svefnpoka með sér, dýnur og jafnvel tjöld því fólk vill hafa næði þegar það fer að sofa því það þarf að mæta til vinnu næsta dag.“ Úkraínumenn geti ekki tekið sér frí í vinnunni eftir erfiðar nætur til að hvíla sig.
Tanya telur þó að sumir borgarbúar séu þó orðnir vanir ástandinu og reyni að halda lífinu áfram. „Fólk hugsar með sér að það sé drónaárás en að það þurfi samt að versla inn. Eða að það sé dróni en það ætli samt að ná 10.000 skrefum þann daginn, eins og ég hef hugsað. Því lengur sem við búum við þetta ástand því vanari verðum við. Ekki allir auðvitað, en sumir.“
Fólk undirbýr sig eins og hægt er fyrir veturinn
Úkraínumenn fengu í sumar ráðleggingar frá stjórnvöldum fyrir veturinn. Tanya segir undirbúninginn ýmis konar. Sumir hafi yfirgefið borgina og vilji búa í minni bæjum og þorpum. Þar geti lífsbaráttan gengið betur, fólk geti til dæmis nýtt sér eldivið frekar þar en í blokkum í borginni.
„Þeir sem ég þekki í Kyiv, fjölskylda og vinir, hafa komið sér upp matarbirgðum og öflugum hleðslutækjum.“ Þá hafi fólk þungar áhyggjur af því að árásir á rafveitur geti orðið til þess að skólpið virki ekki.
Gamlar byggingar skemmdar eftir árásir
Rússlandsher hefur gert harðar árásir á borgina að undanförnu og eyðileggingin blasir víða við. „Það nístir hjartað að sjá skemmdirnar,“ segir Tanya. Ein af ástæðum þess að hún hafi ákveðið að snúa til baka frá Íslandi væri ást hennar á borginni sem henni þykir svo falleg. Þar séu margir almenningsgarðar og fallegar gamlar byggingar.
„Alltaf þegar ég sé skemmda byggingu eftir flugskeyti eða dróna þá nístir það hjartað.“ Það séu margar byggingar með engum rúðum, þær hafi brotnað og gluggarnir huldir með viðarplötum. Í borginni séu ýmsar minjar á lista UNESCO og það sé sárt að sjá þær skemmdar.
„Kyiv er svo falleg borg og ég get ekki horft upp á Rússlandsher skemma hana sífellt meir með hverri dróna- og flugskeytaárásinni eftir aðra.“
Tanya kveðst hugsa til dvalarinnar á Íslandi fyrstu tvö ár allsherjarinnrásarinnar með þakklæti. „Alltaf þegar ég sé eitthvað tengt Íslandi hlýnar mér um hjartarætur og þegar ég er að borga í búðinni og fólk spyr mig að einhverju segi ég oft óvart „já“ á íslensku.“
Hún er fullviss um að hún eigi eftir að heimsækja Ísland í framtíðinni og segir Úkraínumenn mjög þakkláta Íslendingum fyrir hlýjar móttökur.