Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.
Líklega er ekkert stórhýsi á höfuðborgarsvæðinu, sem stendur tómt eins vel staðsett og það.
Landsvirkjun ákvað að selja húsið, 4500 fermetra, og það tókst í ágúst í fyrra. Kaupverð var 1,2 milljarðar króna. Kaupandi var þróunar- og fasteignafélagið Landsbyggð ehf. sem hefur meðal annars staðið fyrir uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi.
Landsbyggð á nú 5600 fermetra af húsinu eftir að hafa fest kaup á fleiri eignarhlutum á jarðhæð. Búið er að gera leigusamning. Þegar fréttastofa óskaði eftir því við Landsbyggð hver það væri sem ætlaði að leigja húsið gat Landsbyggð ekki upplýst fréttastofu um nafn leigutaka því að nafn hans væri trúnaðarmál að svo stöddu.
Þótt Landsbyggð megi ekki gefa upp hverjum hún leigir þá verður heilbrigðisþjónusta í hluta hússins samkvæmt byggingarleyfi. Fyrir hálfum mánuði samþykkti byggingarfulltrúinn í Reykjavík breytingar á innra skipulagi neðstu hæða hússins. Þar á að innrétta læknastöð í kjallara og á fyrstu og annarri hæð og bæta við útihurð.
Beinast liggur við að ætla að Læknavaktin, sem er í sama húsi í Austurveri, ætli að flytja sig um set en svo er ekki.
Frá því í vor hefur nokkuð verið rætt innan læknastéttarinnar um að til standi frekari uppbygging utan spítalanna eins og uppbygging læknavaktar, bráðamóttöku eða skurðstofa. Ekki er vitað hvort hið opinbera er í einhverjum viðræðum. Forstjóri Sjúkratrygginga svaraði ekki skilaboðum í dag og heilbrigðisráðherra var upptekinn í kvöld.