Í Facebook-færslu sinni segir hún að í ræðu sinni fyrir kjörið hafi hún lagt sérstaka áherslu á mennskuna, bæði í sambandi læknis og sjúklinga/fólks sem leitar sér heilbrigðisþjónustu og mennsku læknastéttarinnar sjálfrar.
„Það er sérlega mikilvægt að standa vörð um mannleg samskipti, samkennd og traust á tímum ofurhraðrar og nánast stjórnlausrar tækniþróunar, auk mikilla átaka og óvissu á alþjóðasviðinu. Mennskan verður alltaf hjartað í heilbrigðisþjónustu. Án hennar munu heilbrigðiskerfi heimsins eiga erfitt með að standast þær áskoranir sem fram undan eru,“ segir Steinunn.
Stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldar
Í færslu sinni fer hún einnig yfir sögu samtakanna og svo yfirlýsingu sem samþykkt var á fundinum um helgina en þau voru stofnuð í París árið 1947 í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar, af læknum frá 27 löndum, þar á meðal Íslandi.
„Hlutverk samtakanna frá upphafi hefur verið að tryggja sjálfstæði læknastéttarinnar og að læknar veiti ávallt heilbrigðisþjónustu af bestu mögulegu gæðum og samkvæmt ítrustu siðareglum stéttarinnar. Í dag eiga læknafélög frá 115 löndum aðild að samtökunum, en saman eru þau fulltrúar 10 milljón lækna um heim allan,“ segir Steinunn.
Árásir verði rannsakaðar af óháðum aðilum
Hún segir jafnframt að á fundinum hafi verið samþykkt tímamótayfirlýsing um hlutleysi heilbrigðisþjónustu, Declaration of Rotterdam on Medical Neutrality, og að Jón Snædal, öldrunarlæknir og fyrrverandi forseti WMA (2007–2008), hafi verið lykilmaður í vinnunni að yfirlýsingunni.
„Yfirlýsingin á brýnt erindi við samtímann. Þar er meðal annars krafist þess að alþjóðalög séu virt, að heilbrigðisstarfsfólki sem er í haldi eingöngu fyrir að sinna störfum sínum verði skilyrðislaust sleppt og að árásir á heilbrigðisþjónustu verði rannsakaðar af óháðum aðilum. Þá er lagt til að Sameinuðu þjóðirnar skipi sérstakan talsmann til verndar heilbrigðisþjónustu í vopnuðum átökum. Einnig er lögð rík áhersla á að læknafélög tali skýrt gegn brotum á hlutleysi heilbrigðisþjónustu, jafnvel þegar stjórnvöld í þeirra eigin löndum eiga í hlut,“ segir Steinunn að lokum.