Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því að Úkraínumenn og Rússar hafi gert samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvors annars.
Fjöldi héraða í Úkraínu urðu rafmagnslaus eftir árásirnar.
Úkraínuforseti segist ekki kannast við umrætt samkomulag og Rússland hefur ekki tjáð sig um staðhæfingu Trumps. Zelensky segir þó að það standi ekki á Úkraínumönnum að virða vopnahlé, en Rússar verði að virða það sömuleiðis.
Fjöldi þjóðarleiðtoga hefur lýst yfir stuðningi við Úkraínu síðustu daga eftir að greint var frá samningi Bandaríkjanna og Rússlands um dísilolíuviðskipti.
Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney fordæmir samninginn og segir hann þvert á tilraunir Úkraínu, Kanada og bandamanna til að skapa frið og stöðugleika í Evrópu. Carney styður hlé á árásum á orkuinnviði og vopnahlé milli Rússa og Úkraínu.
Andy Burmham forsætisráðherra Bretlands og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórar ESB hafa einnig lýst yfir stuðningi við vopnahlé.
Sjö bandarískir öldungadeildarþingmenn, þar af fjórir Repúblikanar, sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem þeir gagnrýndu samning Bandaríkjaforseta við Rússa um dísilolíuviðskipti og segja hann ólöglegan.