Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árás á flugvöllinn á laugardag þegar minnst 12 voru drepnir og yfir 300 særðust. Hútar hafa einnig hótað enn frekari árásum á samgönguinnviði í landinu.
Flugmálayfirvöld hafa framlengt lokun á flugvellinum fram til klukkan níu á mánudagskvöld.
Hútar hafa blásið til sóknar í árásum sínum á Sádi-Arabíu síðustu daga. Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa sett mikla fjármuni í að styrkja herinn en þrátt fyrir það tekst Hútum að fara fram hjá loftvörnum þeirra.
Thomas Juneau, sérfræðingur í öryggismálum við Ottawa-háskóla, segir að loftvörnum Sádi-Arabíu hafi tekist að stöðva nokkrar flugskeyta- og drónaárásir Húta en þar sem landið sé svo stórt sé einfaldlega ómögulegt að verjast öllum árásunum.
Árásir Húta á alþjóðaflugvöllinn í Ríad á laugardag eru þær mannskæðustu í Sádí-Arabíu síðan í maí 2015. Árásirnar hafa verið fordæmdar harðlega, meðal annars af aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, og mörgum þjóðarleiðtogum.