Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skemmdarverk og grafa undan öryggi í samfélaginu.
Meðal hinna handteknu er fyrrum hermaður í her Marokkó. Hópurinn kom yfir til Alsír frá Túnis.
Styrt hefur verið á milli stjórnvalda í Alsír og Marokkó í mörg ár og landamærum landanna hefur verið lokað síðan 1994. Alsír sleit svo öllum diplómatískum samskiptum við Marokkó árið 2021.
Eitt helsta ágreiningsefni landanna er Vestur-Sahara. Þessi fyrrum spænska nýlenda hefur að mestu verið undir stjórn Marokkó síðan 1975 en er skilgreind sem svæði án sjálfsstjórnar samkvæmt Sameinuðu þjóðunum.
Polisario-hreyfingin, sem vill stofna sjálfstætt ríki hinnar innfæddu Sahrawi-þjóðar í Vestur-Sahara, átti í vopnaðri baráttu við Marokkó þar til samið var um vopnahlé árið 1991. Vopnahléð átti að leiða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Vestur-Sahara en þessi atkvæðagreiðsla hefur aldrei farið fram.
Stjórnvöld í Marokkó vilja fullveldi yfir svæðinu en stjórnvöld í Alsír styðja Polisario-hreyfinguna og kröfur hennar um sjálfstæði.