Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.
Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða féll niður í ánna Budhi Gandaki og olli miklu flóði. Þrjár virkjanir og fjórar brýr eyðilögðust í flóðinu. Yfir 80 var bjargað á lífi skömmu eftir að flóðið féll.
Íbúar í Nepal eru enn að jafna sig eftir skyndiflóðið 26. ágúst, þegar 1.400 fórust. Enn er yfir 5.000 saknað eftir það flóð.
Þá varð annað minna flóð og skriða í lok september og 21 fórst í þeim náttúruhamförum.