Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir

Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir

Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlababnkans. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er gestur Sætisins.

Aðspurður hvers vegna verðbólgan sé ekki nær markmiðum bankans þrátt fyrir háa stýrivexti segir Ásgeir að margt hafi gengið á.

„Í fyrsta lagi frá því að Covid lauk þá hefur hagkerfið vaxið mjög hratt. Við erum að tala kannski um 20 til 25% hagvöxt. Svo hafa laun hækkað töluvert, kaupmátturinn hefur aukist sem er gott og svona verið þensla. Líka hefur verið innflutningur á fólki til landsins sem hefur leitt til þess að það hefur verið þensla á fasteignamarkaði, bæði leiguverð og fasteign hafa hækkað.“

Klippa: Seðlabankinn reyni að reka velferðarstefnu

Trúir því að verðbólga sé á niðurleið

Hann nefnir fleiri áföll á borð við eldgos og flutning Grindvíkinga í önnur sveitarfélög.

„En við viljum samt meina það að í sjálfu sér hefur peningastefnan gengið tiltölulega vel, það er að segja hún er að miðlast vel. Og við trúum því núna að verðbólga sé í hámarki og núna fari hún lækkandi.“

Hann segir að staðan væri þyngri ef peningastefnunefnd hefði ekki haldið svona fast í taumana. 

„Við getum bara vel ímyndað okkur ef við myndum taka vextina niður í 2% hvað myndi gerast.“

Hvað myndi gerast?

„Þá færi allt af stað aftur, þá færi neyslan af stað aftur, þenslan og í rauninni hagkerfið aftur af stað. Ég vil líka leggja áherslu á að það er ekki bara það að við þurfum að fylgja peningastefnunni heldur líka að við höfum verið með þjóðhagsvarúðartæki til þess að hafa hemil á skuldsetningu, hafa hemil á útlánum bankanna, tryggja jafnvægi á gjaldeyrismarkaði og þrátt fyrir allt þá er staða þjóðarinnar mjög góð ef við bara lítum á heildarstöðuna, ef við lítum bara á kerfið okkar.“

Skuldir séu mjög lágar og jafnvægi á gjaldeyrismarkaði.

„Skuldabréfamarkaðurinn okkar er líka í lagi. Það sem við köllum vaxtarófið, sem eru þá vextir frá stysta líftíma yfir til þess lengsta, það er niðurhallandi. Af hverju skiptir það máli? Ja, vandinn náttúrulega úti hjá svo mörgum löndum er að langir vextir eru að hækka. Og vaxtarófið er upphallandi. Þannig það hefur margt gengið mjög vel eftir en verðbólgan er of há, ég geri mér fulla grein fyrir því.“

Staða heimilanna mjög mismunandi

Fjármálaráðherra sagði fyrir stuttu að heimilin stæðu vel þó á því væru auðvitað undantekningar.

Tekur þú undir það?

„Staða heimilanna er náttúrulega mjög mismunandi og ef við bara lítum á launin þá hafa þau hækkað, kaupmátturinn hefur komið. En auðvitað eru hlutir eins og milli kynslóða, það liggur fyrir að staða fólks á fasteignamarkaði ræður mjög miklu um lífskjör. Hvort fólk hafi til dæmis náð að kaupa sér á ákveðnum tíma eða hvort það sé á leigumarkaði og svo framvegis. Þannig að það auðvitað skiptir mjög miklu máli.“

„Auðvitað höfum við núna áhyggjur af ungu fólki sem er að stofna heimili, vill koma inn á fasteignamarkaðinn og svo framvegis. Þannig að við höfum líka reynt að bregðast við því eins og við getum.“

Launa- og gjaldahækkanir erfiðastar

Þú nefndir áðan nokkur atriði sem valda verðbólgu, ytri áföll, húsnæðisverð og annað en hvað vegur þyngst í þessu?

„Fyrst var það fasteignamarkaðurinn sem vó langþyngst, bara mikil hækkun á fasteignaverði og síðan leiguverði. Það sem hefur verið núna aðallega að reka þetta áfram hafa verið innlendar hækkanir, hækkanir af innlendri þjónustu og svona hlutir sem að einhverju leyti held ég stafa af því hvað laun eru orðin há hér.“

Launahækkanir þá og gjalda- og skattahækkanir?

„Já, þær hafa náttúrulega líka haft áhrif, já.“

Margsannað að launahækkanir valdi verðbólgu

Það hefur verið deilt um það í aðdraganda kjarasamningsviðræðna hvað valdi raunverulega verðbólgu. Halla Gunnarsdóttir formaður VR hefur sagt það rangt að launahækkanir valdi verðbólgu.

Hvað segir þú um það?

„Ég held að það sé alveg ljóst. Ég er nú fæddur um 1970. Ég tel mig reyndar vera ungan mann en á mínu æviskeiði hafa verið gerðar margar tilraunir á Íslandi með því að hækka laun. Og það er alveg ljóst hvað gerist alltaf. Verðbólgan hækkar þegar þú hækkar launin, þetta tengist. Auðvitað er það mismunandi milli atvinnugreina hvað þær eru næmar fyrir launastiginu.“

Það skipti líka máli hvernig aðrar aðstæður séu.

„Laun geta hækkað ef það er framleiðni og innistæða fyrir því, viðskiptakjörin hjálpa. Ef launahækkanir eru í samræmi við framleiðni og samræmi við hagvöxt og svo framvegis að þá eigum við að geta fengið hækkun launa og hækkun kaupmáttar án þess að það skapi verðbólgu. En ef þú ferð langt út fyrir það umfram framleiðni, umfram hagvaxtargetu kerfisins, þá færðu verðbólgu og það er bara margsannað mál.“

Ásgeir segir Seðlabankann ekki á móti því að fólk hafi það gott.vísir/Einar

Launahækkanir á Íslandi hafi verið í kringum sex til átta prósent í fimm ár og miklu meiri en í öðrum löndum.

„Auðvitað kemur það fram í verðbólgu og ég held við þurfum ekkert að reyna að ræða það. En það sem við myndum vilja komast á er sá staður að við værum með aðeins hóflegri launahækkanir og við gætum fengið hækkun launa án þess að það skapi verðbólgu. Þannig að við séum innan þessa þægindahrings sem allar þjóðir vilja vera, þar sem við sjáum hækkun launa leiða til samsvarandi hækkunar kaupmáttar og þá er ekki þessi verðbólga og þessir háu vextir.“

Fólk megi hafa það gott

Ásgeir segir að auðvitað hafi verið innistæða fyrir einhverjum af þessum launahækkunum. Kaupmáttur hafi hækkað.

„Við erum að gera margt rétt á þessu landi. Seðlabankinn er alls ekki á móti því að fólk hafi það gott, svo það sé á hreinu.“

Óttast ekki að peningastefnan sé vandamálið

Aðspurður hvort hann óttist ekki að peningastefnan sjálf geti orðið vandamál í sjálfu sér að því leyti að húsnæði hækki í verði vegna hárra stýrivaxta sem valdi verðbólgu og af stað fari hringrás sem erfitt er að stoppa segir Ásgeir.

„Það er töluverður vandi að beita peningastefnunni. Við erum með allar ákvarðanir peningastefnunefndar og þetta er nefnd, ég er bara eitt atkvæði. Stundum er talað eins og ég ákveði vextina einn en það er auðvitað ekki þannig. Við erum fimm í nefndinni, ég er bara eitt atkvæði.“

Gríðarlegur undirbúningur sé að baki ákvörðunum, greiningar og fundir þar sem nefndin reyni að velja þá vexti sem henti best fyrir kerfið. Ásgeir segir að auðvitað sé hægt að deila um ákvarðanir nefndarinnar.

„Vegna þess að heimurinn er ekki klipptur og skorinn, hagkerfið er ekki vél og líka að einhverju leyti verðum við að meta hluti.“

Hann minnist þess að hæst hafi nefndin farið með stýrivexti upp í 10%.

„Hefðum við átt að taka vexti upp í 20%? Hefðum við kannski getað náð verðbólgumarkmiðinu fyrr með því að gera það? Já, mögulega. En það hefði mögulega valdið miklum kostnaði fyrir efnahagslífið og valdið þjóðinni kostnaði.“

Ásgeir segir að mögulega hefði peningastefnunefnd átt að hækka stýrivexti meira hraðar.vísir/einar

Það sé því ákveðinn línudans að reyna að velja vaxtastig sem sé til þess fallið að ná verðbólgunni niður en ekki að kæfa hagkerfið á sama tíma.

„Ég var mjög hræddur um að við værum kannski komin að þeim tímapunkti núna að við værum að sjá verðbólgu halda áfram en samt engan hagvöxt og við værum að lenda í því að við værum að beita peningastefnunni í rauninni í samdrætti sem er það sem enginn seðlabanki vill sjá.“

Loksins eitthvað til að gleðjast yfir

Hann segist því gleðjast yfir því að samningar hafi náðst á vinnumarkaði fyrir helgi.

„Loksins kemur eitthvað sem seðlabankastjóri getur glaðst yfir og Seðlabankinn. Núna fáum við ár með tiltölulega hóflegum launahækkunum sem við verðum að nýta vel og vonandi gengur þetta eftir, að við náum lækkun verðbólgu á næsta ári og í kjölfarið á því getum við lækkað vexti.“

Hans vonir standi til þess að verðbólgutoppi sé náð.

„Ég hef fulla trú á því að þegar kemur fram við áramót fari hún lækkandi.“

Of gróft stjórntæki?

En hvað með það sjónarmið að hluti verðbólgunnar komi frá þáttum sem stýrivextir hafa takmörkuð og jafnvel engin áhrif á, eins og hækkun opinberra gjalda, stöðuna á húsnæðismarkaði og erlendum áföllum? Er þetta of gróft stjórntæki?

„Það er alveg rétt að peningastefnan er mjög öflugt stjórntæki en hún ræður ekki við allt. Auðvitað fáum við, eins og núna olíuverðshækkanir að utan, við ráðum ekki við þær. Það er líka þannig að ef við erum með 2% verðbólgumarkmið en opinberi geirinn fylgir þessu markmiði okkar ekki, þá er mjög erfitt fyrir okkur að ná markmiðinu. Það er líka erfitt fyrir okkur að ná þessu markmiði ef það er samið um laun á vinnumarkaði sem eru langt fyrir ofan okkar verðbólgumarkmið.“

Því skipti máli að allir gangi í takt.

„Það er rétt að það eru ákveðnar takmarkanir á því hvað við getum gert og hvað við getum ekki gert og líka, eins og ég segi aftur, ef við förum að beita peningastefnunni með svona mikilli hörku þá veldur það miklum kostnaði. Það veldur atvinnuleysi og mögulega greiðsluvandræðum fólks. Og það eru auðvitað aukaverkanir sem við erum meðvituð um. Þess vegna skiptir rosa miklu máli að við fáum aðra með okkur.“

Beiting stýrivaxta sé rétt nálgun

En með tilliti til þess að þú sagðir áðan að það sem hefði mest áhrif á verðbólguna núna væri hækkun á þjónustu og gjalda- og skattahækkanir. Stýrivextir hafa ekki áhrif á þá þætti. Er beiting stýrivaxta þá enn rétt nálgun?

„Það er náttúrulega rétt nálgun að viðhalda þéttu peningalegu aðhaldi til þess að tryggja að verðbólgan hjaðni. Ég held það sé alveg rétt hjá þér að varanleg lækkun verðbólgu getur aðeins orðið með samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar og það er í rauninni bara eina leiðin.“

Ekki lítið mál að fá alla að borðinu

Mikill samtakamáttur var í aðdraganda kjarasamningsviðræðna. Fyrirtæki frystu verð, ríkisstjórnin lækkaði boðaðar gjaldahækkanir og sveitarfélögin taka einnig þátt.

Hvers vegna gerðist þetta ekki miklu fyrr? Voru allir bara sofandi á verðinum eða vildi fólk bara ekki taka þátt? Af hverju virðist þetta allt í einu svona lítið mál?

„Það er nú kannski aldrei lítið mál. Allir þessir aðilar hafa mismunandi hagsmuni. Ég veit það ekki... að einhverju leyti er hver í sínu horni. Við erum með sjálfstæða peningastefnu og við eigum að vera alveg sjálfstæð. Við getum ekki setið við borðið með hinum. Það er ekkert eðlilegt en auðvitað reynum við að hvetja þau áfram til góðra verka. En ég veit það ekki, mér finnst bara mjög jákvætt að þetta hafi gerst núna. Samningurinn sem gerður var fyrir tveimur árum átti að tryggja þetta.“

Ásgeir segir ekki æskilegt að halda stýrivöxtum háum lengi.vísir/einar

Það hafi ekki gengið nægilega vel að ganga í takt eftir stöðugleikasamningana frá árinu 2024 af mörgum ástæðum.

„Samningurinn gekk ekki yfir alla línuna. Það voru önnur kjarafélög sem fengu meiri hækkanir og það var ekki alveg samhljómur. En núna erum við vonandi á þeim stað að við erum með samhljóm og nýtum vel þetta ár sem liggur fyrir til þess að við náum saman.“

Ekki æskilegt að halda vöxtum háum svona lengi

Aðspurður hvort það sé ekki erfitt að horfa á stöðu heimilanna, sérstaklega barnafólks með óverðtryggt húsnæðislán, segir Ásgeir.

„Hvað varðar heimilin þá hugsa ég um það sjálfur, þetta eru töluvert háir vextir og það er ekki með léttu geði sem við gerum þetta og auðvitað höfum við og ég samúð með skuldsettum heimilum. Auðvitað hef ég samúð með ungu fólki sem er að byrja að búa sérstaklega. Þess vegna hef ég oft verið dálítið ákafur þegar ég hef verið að tala til annarra aðila að koma með okkur vegna þess að það er alls ekkert æskilegt að við séum að halda vöxtum svona háum lengi.“

„Þetta er ekkert gott og við ættum að geta staðið okkur þarna miklu betur. En þessi peningahagfræði sem við náttúrulega erum að vinna með til að halda jafnvægi hér á Íslandi, hún auðvitað krefst þess að við beitum vöxtum með þessum hætti.“

Atvinnuþátttaka ákveðinn mælikvarði

En hver eru mörkin? Hvenær eru stýrivextir of háir og beinlínis skaðlegir fyrir samfélagið?

„Það er góð spurning. Ég held að það sem skipti mestu fyrir heimilin er náttúrulega atvinna. Við förum að sjá skaðleg áhrif af stýrivöxtunum þegar atvinnuleysi er farið að aukast verulega og förum að sjá samdrátt í efnahagslífinu, þá erum við að sjá í rauninni kostnaðinn koma fram. En hins vegar er kostnaðurinn við að láta verðbólgu halda áfram, hann er líka alveg töluverður.“

Tekjulágt fólk finni mest fyrir verðbólgunni

Ásgeir segir að þeir sem finni mest fyrir verðbólgu sé tekjulágt fólk og að því leyti sé verðbólga þjóðfélagslegt mein.

„Hún lækkar lífskjör fólks, sérstaklega þeirra tekjulægstu. Þannig að ég hef kosið að líta svo á að við værum í rauninni að reyna að reka velferðarstefnu og ég veit að 8% vextir eru mjög háir, en ég trúi því núna að við séum í hámarki og núna þegar allir hafa komið saman, að við séum farin að ná verðbólgunni saman niður og við séum að fara að geta farið að lækka vexti síðan.“

Ásgeir segir það rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir komi misjafnlega niður á hópum. Stýrivextir séu biturt meðal.vísir/einar

Verkalýðshreyfingin hefur verið harðorð í garð Seðlabankans og talað um að háir vextir komi sérstaklega niður á fólki með húsnæðisskuldir, leigjendum og barnafólki. Talað er um að hávaxtastefna sé skattahækkun á skuldug heimili og tekjulága hópa sem taka á sig mikinn kostnað á meðan eignameira fólk og skuldalitlir hópar finna kannski minna fyrir vaxtahækkunum.

Gagnrýnin að sumu leyti réttmæt

Er sanngjarnt að þessi hópur sé látinn bera þungann af þessari stefnu? Eða ertu ósammála þessari nálgun?

„Þessi gagnrýni er að sumu leyti réttmæt. Vaxtahækkanir koma vel fyrir þá sem eiga sparifé á vöxtum en koma sér illa fyrir þá sem reka fyrirtæki eða eiga til dæmis hlutabréf eða eitthvað álíka. Hærri vextir lækka hlutabréfaverð. Þannig að hávaxtastefna er ekki endilega að koma eignafólki sérstaklega vel, ekki þeim sem eiga fyrirtæki eða eru að reka þau, svo það sé alveg á hreinu.“

„En þessi gagnrýni er alveg að einhverju leyti rétt, að vextirnir leggist á skuldugt fólk. Það sem skuldar er að miklu leyti ungt fólk, en það er sem sagt ákveðin leið til þess að lækka vextina. Það er það að launakröfum sé stillt í hóf og við höldum okkur á þessum þægindaramma þar sem launin hækka í samræmi við framleiðni og fara ekki umfram það og við séum þá ekki að sjá allt of miklar hækkanir sem bara búa til verðbólgu og kalla fram vaxtahækkanir af okkar hálfu.“

Að einhverju leyti afleiðingar af þeirra eigin gjörðum

Hann segist hafa mikið álit á verkalýðsforingjum.

„En þeir þurfa líka að horfast í augu við það að einhverju leyti eru þetta afleiðingar af þeirra eigin gjörðum sem komu þarna fram. En ég skal vera fyrstur til þess að viðurkenna það að stýrivextir eru biturt meðal og lenda misjafnlega á fólkinu hér í þessu landi og það er alls ekki með glöðu geði sem við höfum verið að beita þessu tæki.“

Hann vilji ekkert frekar en að sjá verðbólguna ganga niður og að jafnvægi náist.

Verðbólgan er að mati Ásgeirs að einhverju leyti afleiðing af ákvörðunum verkalýðshreyfinga enda hafi launaþróun áhrif.vísir/einar

En er þetta ekki ósanngjarnt? Ertu hræddur um að stefnan valdi ójöfnuði?

„Það sem kannski skiptir miklu máli í þessu samhengi eru sérstaklega kynslóðirnar. Auðvitað er það, og ég get vel skilið það, að fólki finnist ósanngjarnt að það skipti máli á hvaða ári þú fæðist og á hvaða ári þú kemur út af fasteignamarkaðnum, sem dæmi.“

En er engin leið betri en þessi? Er engin betri leið?

„Þetta er reyndar góð spurning. Við höfum verið að reyna önnur tæki líka, eins og við köllum þjóðhagsvarúðartæki, meðal annars varðandi fasteignalán. Við höfum verið að veita sérstakar undanþágur fyrir fyrstu kaupendur. Og við höfum verið að ýta á bankana líka að veita líka undanþágur fyrir fyrstu kaupendur.“

Vandinn sé sá að einungis eitt tæki gangi yfir alla línuna.

„Og að einhverju leyti er það verkefni Alþingis og ríkisvaldsins í rauninni að hjálpa ákveðnum hópum og við höfum alveg skilning á því að sem sagt ríkisvaldið hafi stefnu eins og barnabætur sem dæmi til þess að koma til móts við þennan hóp.“

Töluverðar launahækkanir fram undan

Aðspurður hvort þær launahækkanir sem samið var um í kjarasamningunum frá árinu 2024 og eiga eftir að koma til framkvæmda séu verðbólguhvetjandi eða þyngi stöðuna að einhverju leyti segir Ásgeir mikilvægast að samningar haldi.

„En þetta eru alveg töluverðar hækkanir og myndu teljast miklar hækkanir í erlendum samanburði. Ég held að það sé eitthvað mismunandi milli félaga, 3 til 5% hækkanir sem komu fram um áramótin. Það eru alveg töluverðar hækkanir en þær eru samt minni heldur en hafa verið áður.“

En telur þú þær verðbólguhvetjandi?

„Nei, ég er að vonast til þess að við séum að ná niður núverandi verðbólgu og ég held að kjarasamningarnir sem voru gerðir... Verkalýðsfélögin sem gerðu samningana vildu sjá samningana ná niður vöxtum og verðbólgu og þau eru enn á þessari skoðun greinilega og ég trúi því að við náum að nýta þetta eina ár mjög vel.“

Ásgeir er ánægður með áform ríkisstjórnarinnar hvað varðar áherslu á hallaleysi.vísir/einar

Hvað finnst þér um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar? Er hún til þess fallin að bæta stöðu mála eða hefur hún lengt í þungri stöðu?

„Ég er bara mjög ánægður með þá áherslu sem ríkisstjórnin kom með varðandi aukið aðhald í ríkisfjármálum og það er þannig með ríkisfjármálin að þetta er að einhverju leyti langvarandi verkefni. Ríkisstjórn sem kemur inn kemur auðvitað að einhverju borði þar sem aðrir hafa setið áður og ýmsir hlutir í gangi.“

Hann segist ánægður með áherslur fjármálaráðherra um hallaleysi.

„Þetta verkefni er bara mjög erfitt en síðan náttúrulega má alveg velta fyrir sér hvort mögulega þurfi að fara út í meiri langtímastefnumörkun sem nær yfir miklu fleiri ár, ekki ein fjárlög, um það bara hvernig við nýtum peningana.“

Þetta sé alltaf spurning um að stemma af það fjármagn sem við höfum og þær þarfir samfélagsins.

„Alla jafna er Seðlabankinn tiltölulega ánægður með þá áætlun sem hefur verið þarna lögð fram.“

Tekur ekki afstöðu til aðferðafræðinnar

Hvað með þau skref sem þarf að taka til að ná hallaleysi? Það hefur verið deilt töluvert um gjalda- og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Eru þær erfiðar fyrir ykkar vinnu þegar kemur að baráttunni við verðbólgu?

„Já, við erum auðvitað ekki ánægð með gjaldahækkanir, nei. Þær náttúrulega hækka verðbólgu til skemmri tíma. Við viljum bara að fjárlögin valdi minni þenslu og við í sjálfu sér getum ekki tekið afstöðu til þess hvort það sé unnið á gjaldahlið eða tekjuhlið, hvort skattar séu hækkaðir eða útgjöld lækkuð. Væntanlega þarf að gera bæði. Þannig við getum ekki tekið afstöðu til þess.“

Verði að virða pólitíkina í landinu

Hann segir seðlabankastjóra hverju sinni ekki kjörinn heldur skipaðan.

„Hins vegar hefur Seðlabankanum verið falið ákveðið vald af Alþingi. Ég reyni að vera aðeins auðmjúkur gagnvart því að við erum að einhverju leyti að fara með vald sem fólkið hefur gefið okkur og það er líka rekin pólitík í landinu sem við verðum að virða.“

Það sé þó verkefni Seðlabankans að hugsa um markmið bankans.

„Okkur er ætlað að tala skýrt og opið um þau mál, þannig að þetta er svona alltaf einhver lína sem við verðum að vinna eftir en auðvitað verðum við alltaf að virða það. Að lokum er það auðvitað vilji fólksins sem ræður og fólkið kýs sér fulltrúa á þinginu.“

Telur sig ekki of pólitískann

Fyrir helgi voru skrifaðar fréttir um skoðun Ásgeirs á leigubremsu en félags- og húsnæðismálaráðherra boðar frumvarp þess efnis.

Svona ummæli fóru öfugt ofan í marga, ertu of pólitískur?

„Það er reyndar góð spurning. Í fyrsta lagi vil ég aftur ítreka það að Seðlabankinn mun skila umsögn um þetta frumvarp og það eru væntanlega bara kostir og gallar af því, þannig að ég var ekki endilega að lýsa skoðun minni á þessu frumvarpi þó að það hafi að einhverju leyti ruglast í umræðunni og ég tek það alveg á mig að hafa ekki verið nægilega skýr.“

Leigumál skipti bankann miklu máli

Hann segir alla hagfræðinga sammála um að það sé ekki góð hugmynd að setja á leiguþak til að koma í veg fyrir miklar hækkanir á leigu.

„Það veldur því að leiguverð getur hækkað og framboð minnkar. Þannig að þetta er það sem er kennt í öllum hagfræðibókum. Í þessu efni taldi ég mig bara vera að benda á einhvern tiltölulega augljósan sannleika.“

„En auðvitað getur verið að það séu önnur markmið eins og það að tryggja öryggi leigjenda og þá þarf bara að meta þau.“

Ekki óeðlilegt að tjá sig um svona mál

Hann vilji þó benda á að rúm 20% af verðbólgunni stafi af leigu.

„Við erum náttúrulega að hækka vexti til þess að reyna að ná leigunni niður líka og ég á von á því að þetta umframboð á fasteignamarkaði leiði til þess að leiga lækki. Leiguverð skiptir okkur gríðarlega miklu máli.“

Það sé því að hans mati ekki óeðlilegt að hann tjái sig um það sem er að gerast í þeim málum. Seðlabankanum sé falið ákveðið verksvið og kjörnum fulltrúum falið ákveðið verksvið.

„Þetta skarast að einhverju marki og það sem fylgir sjálfstæðum seðlabanka er að við eigum að tjá okkur mjög skýrt um hluti. Við erum með okkar tæki hérna sem við stjórnum. Alþingi er með lagasetninguna og það eru kjörnir fulltrúar sem ráða og taka ákvarðanir. Við bara getum komið okkar skoðunum á framfæri en auðvitað virðum við þá niðurstöðu sem síðan kemur fram.“

Ásgeir segist virða þá pólitík sem er í landinu hverju sinni en það sé ekki óeðlilegt að hann tjái sig um mál sem hafi áhrif á viðbragð peningastefnunefndar og varða efnahagsmálin.vísir/einar

Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar

Hafið þið í nefndinni einhvern tímann gengið of langt? Ef þú svona hugsar til baka um þessar ákvarðanir sem hafa verið teknar, hugsar um þungann fyrir heimilin, stöðuna hérna heima. Hefur einhver röng ákvörðun verið tekin?

„Já, já, það hefur alltaf verið. Alltaf þegar þér er falin ábyrgð og þegar þú tekur ákvarðanir þá eru miklar líkur á því að mögulega væri hún röng, bara miðað við það sem þú veist síðar. Mögulega hefðum við átt að hækka vexti hraðar, sem dæmi.“

En hefðu heimilin þolað það?

„Mögulega ef við hefðum hækkað hraðar, mögulega hefðum við getað náð verðbólgunni hraðar niður. Þetta væri styttri tími en það hefði verið meira álag á heimilin í upphafi. En ég vil leggja áherslu á það að svona ákvarðanir eru alltaf teknar undir óvissu og síðan bara gerast hlutir sem við vitum ekki að gerast og það er bara alls staðar.“

„Allir sem lenda í þeirri ábyrgð að taka ákvarðanir þurfa að horfast í augu við það síðar meir að mögulega hefði ákvörðunin getað verið öðruvísi, hefði átt að vera öðruvísi og svo framvegis og það er eitthvað sem þú verður bara að búa við.“

Auðvelt að leiðrétta mistök

Ásgeir segir það jákvæða við stýrivexti að það er tiltölulega auðvelt að breyta þeim.

„Það er hægt að leiðrétta mistök eða hækka þá, lækka þá, eitthvað álíka. Þannig að við getum brugðist tiltölulega hratt við og það er það sem er jákvætt. Það er það sem gerir stýritækin miklu auðveldari tól heldur en til dæmis ríkisfjármál þar sem er svona langur tími og þetta er svona seigfljótandi.“

Líkt og gert var á Covid-tímanum. Þá hafi nefndin verið kölluð saman með engum fyrirvara og vextir lækkaðir til að bregðast við samdrætti.

„Þannig gætum við líka ef við sæjum að íslenskt hagkerfi, eða núna er hagkerfið samt tiltölulega sterkt, ég vil leggja áherslu á það. Ef við sæjum að allt færi í óefni þá getum við brugðist tiltölulega hratt við og við erum náttúrulega líka með fleiri tæki sem við beitum þannig að það er líka hægt að breyta.“

Gerir sér grein fyrir afleiðingum

„Ég vil leggja áherslu á það að þetta er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega og ég sjálfur mjög alvarlega. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ákvarðanir sem við tökum í þessu húsi hafa áhrif á heimilin, hafa áhrif á fjárhag fólks, áætlanir fólks, plan þess fyrir lífið þannig að þetta er eitthvað sem við höfum mjög mikið í huga.“

Hann segist hafa verið vakinn og sofinn yfir verkefninu og vilji ná árangri.

„Og það getur vel verið að stundum verði ég óþolinmóður og verði tiltölulega skýr þegar ég hef verið að koma með skilaboð til annarra en þetta er samt það verkefni sem við erum með og við tökum mjög alvarlega.“

Hann telur Seðlabankann ekki hafa farið fram úr sér við hækkun stýrivaxta.vísir/einar

Telur bankann ekki hafa farið fram úr sér

En telur þú ykkur hafa farið fram úr ykkur á einhverri stundu? Tekið ákvörðun sem þú sást svo eftir?

„Nei, það er kannski aldrei þannig. Eins og til dæmis núna, tökum sem dæmi hvernig við metum þetta. Það var stríð við Persaflóa og þá hækkaði olíuverð. Og þá sjáum við að verðbólguvæntingar voru byrjaðar að hækka og þá sjáum við að um leið og verðbólguvæntingar byrjuðu að hækka þá einhvern veginn fór keðja af stað, einhverjar verðhækkanir fóru að detta inn.“

Þá hafi verið brugðist við með því að hækka vexti.

„Við tókum þrjár stýrivaxtahækkanir og vissum ekki hvernig þær myndu koma út en þær komu út þannig að allar verðbólguvæntingar byrjuðu að lækka. Við vissum að verðbólga myndi hækka núna í haust. Við vissum að hún myndi vera á þessu stigi. Þetta er eitthvað sem við sáum bara síðasta vor þannig að við ákváðum að hækka vexti strax þá til þess að bregðast við verðbólgu sem var að koma núna.“

Þetta sé dæmi um aðgerð sem heppnaðist vel. Aðspurður hvort hann óttist að Seðlabankinn missi trúverðugleika segir hann trúverðugleikann skipta miklu máli.

„Trúverðugleikinn snýr að því að við getum staðið við það hlutverk sem okkur er falið samkvæmt lögum sem er að halda verðbólgu niðri, halda kaupmætti peninganna, og til þess verðum við að beita okkar tækjum. Og lögin eru alveg skýr varðandi það að við erum með verðbólgumarkmið og við eigum að beita okkar stýritækjum til þess að ná þessu markmiði.“

„Þú nefnir stöðu heimilanna og hvernig stýrivextir komi misjafnlega niður á þeim. Að einhverju leyti eru það markmið sem verða að falla á kjörna fulltrúa.“

Fólk vel upplýst

Skellir fólk oft skuldinni á þig? Lendirðu í því í matvöruverslunum að fólki finnist þú bera ábyrgð á persónulegri stöðu fólks?

„Nei, það er ekki þannig. Fólk á Íslandi er reyndar bara upp til hópa tiltölulega vel upplýst. Það fylgist mjög vel með. Auðvitað kemur stundum fólk og vill ræða við mig. Og það er bara mjög gott. Og það vill ræða hluti, ekki endilega skamma mig en það vill bara koma sínum sjónarmiðum á framfæri og spyrja mig og það er bara jákvætt. Ég hef aldrei álitið það að seðlabankastjóri væri til þess að skapa vinsældir.“

Ásgeir telur starf sitt ekki til þess fallið að skapa vinsældir.vísir/einar

Íslensk kerfi standi mjög vel og lífskjör góð

Um tímabundið starf sé að ræða. Ásgeir á þrjú ár eftir í starfi. Hann segir það tilfinningu sína að þjóðin skilji verkefnið.

„En auðvitað skil ég sjálfur að þetta eru mjög háir vextir. 8% vextir eru bara mjög háir vextir. Þetta eru háir vextir sem fólk þarf að greiða af lánunum sínum. Og aftur, við erum bara fullmeðvituð um það. En á sama tíma stendur kerfið líka mjög vel, það er að segja að það er mikill kaupmáttur hérna. Lífskjör hérna eru mjög góð.“

Ásgeir segir fjármálakerfið tiltölulega sterkt, við séum ekki skuldsett, gjaldeyrismarkaðurinn stöðugur og kerfið geti staðist áföll.

„Þannig að við bindum vonir við það að við getum líka tryggt landinu öryggi ef það verða áföll erlendis og svo framvegis, að við getum tryggt landinu ákveðið öryggi líka. En auðvitað eru þetta mjög vandasöm verkefni. Okkar hlutverk er í sjálfu sér skýrt. Það er í rauninni að halda verðbólgu í skefjum.“

Ásgeir er fimmti viðmælandinn í Sætinu. Fyrri viðtöl má sjá hér að neðan.

#raun #reka #reyni #seðlabankinn #velferðarstefnu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946136d/sedlabankinn-reyni-i-raun-ad-reka-velferdarstefnu

📰 Aðrar fréttir

Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 1
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 1
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 1
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 2
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 1
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 1
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 4
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...