Í dag er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægir síðan og léttir til þar.
Í nótt fóru skil yfir landið með hvassviðri eða stormi og rigningu og fara þau norður af landinu um hádegisbil samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Í kjölfar þeirra er spáð sunnan 5-13 m/s og skúrum, en norðaustantil léttir til er líður á daginn. Hiti verður á bilinu sex til 12 stig.
Á morgun er svo spáð suðvestlægri eða breytilegri átt, yfirleitt fremur hægum vindi en 8-13 m/s við suðausturströndina. Skúrir en úrkomulítið fram eftir degi á norðaustanverðu landinu.
Samkvæmt hugleiðingum er svo von á næstu lægð á miðvikudag með norðan vonskuveðri og talsverðri úrkomu og búast má við snjókomu norðanlands seinnipartinn og um kvöldið.
Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 4 til 9 stig að deginum, mildast syðst.
Á miðvikudag: Norðaustan og síðar norðan 13-20 m/s og rigning eða slydda, sums staðar mikil úrkoma. Hiti 2 til 8 stig. Kólnar um kvöldið með snjókomu, talsverðri norðaustantil, en dregur úr úrkomu sunnantil.
Á fimmtudag: Breytileg átt 3-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið, en dálítil snjókoma við norðurströndina. Hiti kringum frostmark að deginum, en að 5 stigum við suðurströndina.
Á föstudag: Suðvestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti 2 til 8 stig, mildast suðvestanlands.
Á laugardag: Vaxandi sunnanátt með rigningu, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hlýnar í veðri.
Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og skúrir, en bjart með köflum á austanverðu landinu.