Tveir ungir drengir réðust að dreng á svipuðum aldri í Hafnarfirði og neyddu hann til að fara af hlaupahjóli sínu. Þeir tóku hjólið síðan ófrjálsri hendi en lögreglu tókst að hafa uppi á drengjunum og hjólinu skömmu síðar.Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Ekki kemur fram hvort drengurinn hafi orðið fyrir meiðslum eða hversu gamlir þeir sem hlut áttu að máli eru.
Tveir ungir drengir réðust að jafnaldra sínum og tóku hlaupahjólið hans