Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. Í þættinum The Zach Sang Show á fimmtudag segir Bass að hann hafi aðeins fengið 35 dollara í dagpeninga og að „fyrsti reikningurinn okkar var 10.000 dollarar,“ og benti á að þessi ótrúlega lága upphæð kæmi eftir „ár af plötum sem náðu fyrsta sæti vinsældalista“ og „uppseldum tónleikaferðalögum“.
Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“