Alríkisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði í gær að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórn hans yrðu að hætta birtingum á auglýsingum með honum sem borgaðar hafa verið úr ríkissjóði.
Að því er bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá notaði heimavarnaráðuneytið 20 milljónir dollara, andvirði 2,5 milljarða króna, til að birta auglýsingar með Trump í aðalhlutverki. Auglýsingarnar hafa verið birtar í aðdraganda þingkosninga vestanhafs. Þar getur ráðist hvort Trump njóti meirihluta stuðnings á þingi eða hvort Demókratar nái meirihluta í deildum þingsins og geti stöðvað framgang mála sem forsetinn leggur áherslu á.
Dómari lagði 14 daga bann við því að skattfé yrði notað til að framleiða og birta auglýsingarnar.