Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Ástin blómstrar
Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni Rakel Tómasdóttur, Birnu Hrönn Björnsdóttur og Evu Maríu Þórarinsdóttir Lange, en Birna og Eva eru eigendur viðburðarskrifstofunnar Pink Iceland, sem sérhæfir sig í glæsilegum áfangastaðabrúðkaupum. Þær hafa verið duglegar að ferðast þrjár saman víða um heim en Birna átti afmæli um helgina og fékk fallegar kveðjur frá konunum sínum.
Vill bara heyra já
Listakonan og tískuskvísan Mekkín Samúels fór út á lífið og biður fólk að segja ekki nei við sig.
Hún var viðmælandi í Tískutali í ágúst þar sem hún fór meðal annars yfir boð og bönn í klæðaburði.
Brynhildur Gaga
Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Guðjónsdóttir fagnaði afmæli sínu með búningapartýi og klæddi sig upp sem poppstjarnan Lady Gaga frá 2008.
Fagnaði kærastanum
Hrafnkatla Unnarsdóttir, eigandi Pons vintage, fór auðvitað að sjá kærastann sinn Saint Pete á tónleikum á föstudaginn.
Skvísuveiðar
Leikkonan Nína Dögg Filippusdóttir fór á fasana-veiðar í Bretlandi með sannkölluðum skvísuhópi. Með henni voru meðal annars athafnakonan Kristín Ólafs og markaðsstjórinn Helga Thors.
Afmælisást
Inga Tinna, forstjóri Dineout, sendi ástinni sinni og unnusta, fyrrum handboltastjörnunni Loga Geirssyni, fallega afmæliskveðju á Instagram.
Barokk-beib
Markaðsstjórinn Pattra Sriyanonge skellti sér á Barokk á klúbbnum á hátíðinni State of The Art.
Hrifin af Sviss
Markaðssérfræðingurinn Hildur Sif Hauksdóttir fór í skvísuferð til Sviss með Sunnevu Einars, bestu vinkonu sinni og áhrifavaldi. Hún var mjög hrifin af landinu.
Skvísulæti!
Útvarps-dúóið Guðjón Smári og Jóna Margrét hittu rísandi poppstjörnuna Unni Borg og skelltu í skvísumynd.
Gellukvöld í Reykjavík
Sara Lind, jafnan tengd við Júník, fór út að borða með vinkonunum um helgina.
Athafnakonan Lína Birgitta var með í för.
Ástfangin í Tansaníu
Kaleo-stjarnan Jökull Júlíusson átti einstaka daga í Tansaníu með kærustunni sinni Brunu Ludmila.
Tókíó-Sofia
Áhrifavaldurinn og athafnakonan Sofia Elsie Nielsen er dugleg að ferðast og upplifa ýmis ævintýri. Hún er nú í Tókíó að njóta.
LXS-kvöld
Birgitta Líf og vinkonuhópurinn hennar sem kallar sig LXS áttu svakalegt skvísukvöld.
Fallegar fjölskyldustundir
Tónlistarmaðurinn Aron Can birti skemmtilega myndasyrpu á Instagram af fallegum fjölskyldustundum.