Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Kostnaður vegna viðgerða og viðhalds á tveimur grunnskólum í Reykjanesbæ er kominn í tíu milljarða. Fyrrum meirihluti gagnrýnir nýja bæjarstjórn fyrir að fara 300 milljónir yfir áætlun á einum mánuði.
Oddvitar Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins gagnrýna nýjan meirihluta í Reykjanesbæ harðlega fyrir að hafa farið tæplega 300 milljónum yfir áætlun á einum mánuði í tengslum við viðgerðir á tveimur grunnskólum og leikskólum. Þá var enginn viðauki við kostnaðinn samþykktur á vettvangi sveitarstjórnarinnar.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Vilhjálmur Árnason, svarar gagnrýninni og má segja að þar mætist stálin stinn. „Þetta eru stærstu grjót úr glerhúsi sem hefur verið kastað,“ segir hann og bendir á að framkvæmdirnar séu þegar orðnar mjög dýrar og mun dýrari en þær þurftu að verða, sem hann rekur til skipulagsleysis hjá fyrri meirihluta.
Tíu milljarðar
Ráðist var í viðgerðir og viðhald á Myllubakkaskóla og Holtaskóla fyrir um fjórum árum. Samfylkingin myndaði þá meirihluta með Framsóknarflokki en kostnaður við framkvæmdina er nú kominn upp í tíu milljarða króna. Guðný Birna, oddviti Samfylkingarinnar, segir að ákveðið hafi verið að forgangsraða fjármagni eftir fremsta megni til framkvæmdanna á síðasta kjörtímabili og endurspeglast það …