Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.
Heimildarmyndin er eftir Ísraelana Yuval Abraham og Rachel Szor og hefur fengið mikla athygli og unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum undanfarið. Myndin byggir á vitnisburði 24 ónafngreindra uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza.
Segir heimildamyndina rægja Ísrael og Ísraelsher um heim allan
Netanyahu fór fram á það í gær að starfsmannastjóri ísraelska hersins, yfirmaður innlendu leyniþjónustunnar og ríkissaksóknari hefji rannsókn á því hverjir tóku þátt í myndinni og að þeir verði sóttir til saka. Greint var frá þessu í tilkynningu frá skrifstofu forsætisráðherrans.
Forsætisráðherrann segir að myndin sé ósönn, misvísandi og hlutdræg frásögn sem rægi Ísraelsríki og Ísraelsher um heim allan. Ísraelsher neitar öllum ásökunum sem koma fram í myndinni og dregur í efa trúverðugleika heimildarmanna myndarinnar.
Heiti myndarinnar, NAZA, er tilvísun í orðatiltæki sem er notað í ísraelska hernum um mannfall almennra borgara í loftárásum. Orðið er stytting á orðasambandi úr hebresku sem þýðir fylgitjón (e. collateral damage).
Vekur athygli erlendis en veldur fjaðrafoki í Ísrael
Myndin fékk nýverið sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og uppskar 25 mínútna lófaklapp að lokinni frumsýningu á hátíðinni. Myndin og umfjöllun um hana hefur valdið miklu fjaðrafoki í Ísrael og Miki Zohar, menningarmálaráðherra Ísraels, segir leikstjóra myndarinnar landráðamenn og það eigi að svipta þá ríkisborgararétti.
Rétt rúm þrjú ár eru frá hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael sem var kveikjan að stríðinu á Gaza, 7. október 2023. Í árás Hamas voru um 1.200 manns drepnir og 250 til viðbótar teknir í gíslingu.
Ísraelsmenn brugðust við með fordæmalausum árásum á Gaza og mikil neyð ríkir á Gaza. Í þeim hafa yfir 74.200 manns verið drepnir samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas-samtakanna. Sameinuðu þjóðirnar telja tölurnar áreiðanlegar.