Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínumanna frá Bandaríkjunum síðan þá. Það hefur meðal annars verið gert í gegnum NATO-verkefni sem kallast PURL og hefur Ísland tekið þátt í því.
Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis deilt upplýsingum um undirbúning Rússa fyrir árásir í Úkraínu, hreyfingar rússneskra sveita á víglínunni og möguleg skotmörk í Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt, með Úkraínumönnum.
Sjá einnig: Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum
Um helgina tilkynntu bandarískir embættismenn kollegum sínum í Úkraínu að þessu yrði mögulega hætt, ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Var það eftir að Trump opinberaði að Bandaríkin ætluðu að kaupa díselolíu frá Rússlandi. Hópur bandarískra öldungadeildarþingmanna segir að þau kaup yrðu líklega brot á lögum og hafa kallað eftir stefnubreytingu.
Trump hefur um helgina gengið hart fram gegn Úkraínu og Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, og sakað hann og Úkraínumenn meðal annars um að bera ábyrgð á háu eldsneytisverði í Bandaríkjunum og heiminum.
Þá lýsti Trump því yfir að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði í hvoru landi fyrir sig. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta er í annað sinn sem Trump segir ósatt um að samið hafi verið um vopnahlé af þessu tagi.
Sjá einnig: Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps
Financial Times sagði frá því í gær að Bandaríkjamenn hefðu hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að hætta að selja áðurnefnd flugskeyti, sem eru Úkraínumönnum gífurlega mikilvæg þegar kemur að því að verjast skotflaugaárásum Rússa.
Aðrir fjölmiðar hafa í kjölfarið sagt sambærilegar fréttir.
Þingmenn segja Trump að hætta við
Hópur öldungadeildarþingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjanna segir að Donald Trump eigi að láta af ætlun sinni að kaupa díselolíu frá Rússlandi. Ekkert samráð um kaupin hafi verið haft við þingið, sem lög segi til um að forsetaembættið eigi að gera.
Þá segja þingmennirnir að Bandaríkin ættu ekki að veita Vladimír Pútín „fjárhagslega líflínu“ á meðan hann haldi áfram mannskæðum árásum á úkraínska borgara. Þess vegna þurfi ríkisstjórn Trumps að breyta um stefnu hið snarasta.
Sjá einnig: Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns
Undir þessa yfirlýsingu skrifa fjórir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins og tveir Demókratar. Repúblikanarnir eru Susan Colins frá Maine, Lisa Mukrowski frá Alaska, Thom Tillis frá Norður-Karólínu og John Curtis frá Utah. Demókratarnir tveir eru þeir Jeanne Shahenn frá New Hampshire og Richard Blumenthal frá Connecticut.
Trump kom flestum á óvart þegar hann tilkynnti á samfélagsmiðlum á föstudaginn að hann hefði gert samkomulag við Pútín um að kaupa rúmlega 300 þúsund tonn af díselolíu frá Rússlandi, hið snarasta. Hálf milljón tonna myndi svo fylgja í næsta mánuði og önnur milljón í kjölfarið. Seinna meir myndu svo þrjár milljónir tonna bætast við.
Tillis sagði í sjónvarpsviðtali sem hann fór í í gær að líkur væru á því að með olíukaupunum frá Rússlandi væri Trump að brjóta lög sem bandaríska þingið samþykkti árið 2022. Þau lög banna kaup á olíu frá Rússlandi.
Tiltölulega stutt er síðan bandarískir þingmenn samþykktu lagafrumvarp kennt við þingmanninn heitna Lindsay Grahama, sem snerist um að veita Trump heimild til að herða refsiaðgerðir gegn Rússlandi og þá sérstaklega gagnvart sölu á olíuafurðum og jarðgasi.
Trump gæti þannig beitt ríki sem kaupa olíu og gas af Rússlandi umfangsmiklum tollum en með þessu vildu þingmenn draga úr peningaflæðinu til Rússlands, þar sem þessi sala er helsta tekjulind ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðsreksturinn gegn Úkraínu.
Forsetinn bandaríski hefur ekki beitt þessum heimildum sínum. Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin.
Sjá einnig: Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna
Trump hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum. Það háa verð þykir líklegt til að koma verulega niður á Repúblikönum í þingkosningunum í næsta mánuði og vill Trump lækka verðið.
AP-fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum í orkumálum í Bandaríkjunum að kaupin á díselolíu frá Rússlandi muni líklegast ekki lækka verð á dælunum.