Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun.
Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir utan verkstæði í Hafnarfirði. Eldurinn var slökktur en bíllinn mun vera gjörónýtur og olli eldurinn skemmdum á öðrum við hlið hans.
Lögreglunni barst einnig tilkynning um innbrot í heimahús í Reykjavík, þar sem lausamunum var stolið. Þá var óskað eftir aðstoð lögregluþjóna við að stilla til friðar á meðferðarúrræði í Árbæ.
Einn var handtekinn fyrir líkamsárás í Hafnarfirði og í Kópavogi var maður handtekinn þar sem hann mun hafa verið í mjög svo annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna verulega ölvaðs manns í söluturni í Múlunum. Hann var fjarlægður þaðan og fluttur á lögreglustöð. Þar er hann þó sagður hafa lofað bót og betrun og var honum sleppt.