Ein þekktasta bók hryllingssagnameistarans Stephen King er frumraun hans, Carrie. Það var þó heljarinnar bras að skrifa bókina og koma henni út. Tabitha, eiginkona King, veiddi fyrstu síður bókarinnar upp úr ruslinu, las þær og sagði eiginmanni sínum að halda áfram að skrifa. „Ég gerði þrjár síður með einföldu línubili úr fyrstu drögum, krumpaði þær svo saman í viðbjóði og henti þeim,“ skrifaði King í grein í The Guardian árið 2000.
Eiginkona King bjargaði Carrie úr ruslinu