Maður sem áður var ákærður fyrir að stinga tvo unga drengi í Providence í Bandaríkjunum var í júlí talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu og fékk að vera áfram í meðferð utan sjúkrahúss. Nú er hann grunaður um að hafa stungið tveggja ára stúlku ítrekað í andlitið þar sem hún sat í kerrunni sinni.
Maðurinn heitir Nelson Blanco og er 46 ára. Árásin varð miðvikudaginn 7. október í Providence í Rhode Island. Móðir stúlkunnar, sem er 26 ára, var þar að bíða eftir tveimur eldri börnum sínum. Móðirin var einnig stungin í öxlina.
Talinn ólíklegur til að stofna öðrum í hættu
Blanco hefur ítrekað verið metinn ófær um að koma fyrir dóm vegna andlegra kvilla. Síðast gerðist það í júlí 2024 þar vegna heimilisofbeldismáls.
Samkvæmt dómsgögnum sem fréttastöðin WJAR hefur aflað samþykkti dómari þá tillögu læknis um að Blanco yrði áfram í meðferð utan sjúkrahúss. Í úrskurðinum segir að hann sé „ólíklegur til að stofna friði og öryggi samfélagsins eða sjálfum sér í hættu á þessum tímapunkti“.
Matið á hæfni til að koma fyrir dóm snýst um hvort sakborningur geti skilið dómsmálið og tekið þátt í eigin vörn.
Blanco hafði áður dvalið árum saman á geðsjúkrahúsi eftir árás á tvo drengi árið 2003. Samkvæmt eldri læknisgögnum sem WJAR hefur skoðað beitti hann einnig ofbeldi á sjúkrahúsinu. Þar var varað við því að hann gæti orðið mjög ofbeldisfullur.
Elti móðurina yfir götuna
Samkvæmt lögreglu þekkti Blanco hvorki móðurina né barnið. Hann gekk að þeim og lét niðrandi ummæli falla í garð móðurinnar. Hún fór yfir götuna til að komast frá honum, en hann fylgdi á eftir og réðst á stúlkuna með hnífi.
Vegfarendur gripu inn í og Blanco flúði inn í nærliggjandi hús. Þar læsti hann sig inni í kjallara þar til lögreglumenn brutust inn og handtóku hann.
Lögregla sagði á fimmtudag að stúlkan væri að berjast fyrir lífi sínu. Móðirin hafði þá verið útskrifuð af sjúkrahúsi og var hjá dóttur sinni. Í nýrri umfjöllun WJAR um helgina kemur fram að stúlkan hafi gengist undir þrjár aðgerðir á fáeinum dögum.
Blanco er ákærður fyrir morðtilraun auk annarra brota.
Fyrri árásin kostaði dreng sjónina á öðru auga
Drengirnir sem Blanco var ákærður fyrir að ráðast á árið 2003 hafa nú rætt við fréttastöðina WPRI. Þeir heita Andy Lopez og Dave Belony og voru sex og sjö ára þegar árásin varð 27. september það ár.
Þeir voru að leika sér í bakgarði þegar Blanco réðst á þá. Báðir þurftu að gangast undir margar aðgerðir og Lopez missti varanlega sjónina á vinstra auga. Ekki var dæmt í málinu þar sem Blanco var metinn ófær um að koma fyrir dóm.
Belony segir afleiðingar árásarinnar enn fylgja sér:
WPRI hefur einnig aflað lögregluskýrslu um nýju árásina. Samkvæmt henni sagði Blanco við rannsóknarlögreglumenn að hann hefði hætt að stinga móðurina og dóttur hennar vegna þess að hann væri á fjölfarinni götu.
„Ef ég hefði haft tíma hefði ég drepið þær báðar.“