Eigendur jarðarinnar Hjarðarbóls vilja reisa nýtt hótel á jörðinni og leita að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá eigendum jarðarinnar.
Þar segir að eftirspurn eftir vistvænni gistingu hafi aukist á undanförnum árum og telja þau tækifæri felast í uppbyggingu í Ölfusi.
Gert er ráð fyrir nýju hóteli á svæðinu auk frekari uppbyggingar tengdrar ferðaþjónustu. Í tilkynningunni segir að horft sé til lausna tengdra vindorku, nýtingu heits vatns og uppbyggingu hleðslustöðva.
Vilja áfram þróa Hjarðarból
Að sögn eigendanna verður lögð rík áhersla á sjálfbærni í uppbyggingu á svæðinu.
„Við viljum halda áfram að þróa Hjarðarból með ábyrgum hætti og sjáum mikil tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu. Hugmyndirnar hafa þegar verið teiknaðar upp og nú leitum við að aðilum sem hafa áhuga á að koma að verkefninu með okkur,“ er haft eftir Sigríði Helgu Sveinsdóttur, annars eigenda Hjarðarbóls.
