Rekstrarstjóri ónefnds hótels vann á dögunum mál gegn fyrrverandi vinnuveitanda sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir að honum var fyrirvaralaust sagt upp störfum í ágúst á síðasta ári. Taldi rekstrarstjórinn að vinnuveitandinn hefði ekki haft nokkra ástæðu til að svipta hann rétti til launa í uppsagnarfresti með því að rifta ráðningarsamningi með vísan til trúnaðarbrests.
Vikið fyrirvaralaust frá störfum með loðnum útskýringum - Síðan komu ævintýralegar ávirðingar