Formaður Samtaka arkitektastofa, Samark, segir svo virðast sem verkefnum arkitekta fari fækkandi og lítið sé að gera í íbúðaruppbyggingu þrátt fyrir eftirspurn eftir húsnæði.
„Við höfum áhyggjur en við erum ekki að panikka.“
Þetta segir Halldór Eiríksson formaður samtakanna. Samark sendi út könnun til félagsmanna í maí um stöðu verkefna og horfur til framtíðar.
Um 30 arkitektastofur heyra undir Samark og segir Halldór það vera bróðurpart þeirra stofa sem séu með arkitektaþjónustu á Íslandi.
Einhverjar uppsagnir hafi átt sér stað
Halldór segir um helming arkitektastofa telja stöðu verkefna verða óbreytta á næsta ári og ekki sjá fram á stóra niðursveiflu. Fleiri en færri af hinum helmingnum telji aftur á móti að verkefnum fari fækkandi.
„Maður finnur að það er erfitt að koma húsnæðisverkefnum af stað og það er alveg viðbúið að menn fari að finna fyrir þessu,“ segir Halldór. Samark hafi áhyggjur af þróuninni til framtíðar.
Hann viti til þess að verktakar hafi verið að minnka við sig að undanförnu og að einhverjar uppsagnir hafi átt sér stað.
Mikilvægt að íbúðir séu hannaðar af kostgæfni
Enn sé nokkuð um uppbyggingu hjá hinu opinbera og hjá fyrirtækjum og nefnir Halldór þar sem dæmi uppbyggingu á vegum Isavia og Landspítalans.
Aftur á móti hafi hægt talsvert á íbúðaruppbyggingu og færri séu að láta hanna fyrir sig. Halldór segir að mikilvægt sé að íbúðarhúsnæði sé hannað af kostgæfni en ekki í æsingi og flýti þegar efnahagsástand leyfi.
Miklar umræður hafi skapast um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis að undanförnu enda margar íbúðir óseldar þrátt fyrir að svo virðist sem mikil vöntun sé á íbúðarhúsnæði.
Halldór segir það vekja upp spurningar um hvernig húsnæði sé þörf á og hvort verið sé að byggja vitlausa tegund af húsnæði, á vitlausum stöðum eða á vitlausu verði.