Úrkomumagn næstu tíu daga gæti orðið allt að nífalt það sem gerist í meðalári að jafnaði á tíu daga tímabili á þessum árstíma. Veðurfræðingur segir besta veðrið áfram á Austurlandi. Mest eigi eftir að rigna á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum en þó einnig á höfuðborgarsvæðinu.
„Það ætlar að hreiðra um sig háþrýstisvæðið hérna fyrir sunnan landið. Þetta er frekar óvenjulegur staður en fyrir vikið beinir hæðin til okkar bæði röku og hlýju lofti til landsins,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Hann segir spána nokkuð eindregna næstu daga.
Þrátt fyrir mikla rigningu segir Einar austurhelming landsins verða að mestu leyti lausan við úrkomuna. Þar fái menn hlýindin beint í æð.
Úrkoman verður mest á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt Evrópsku reiknimiðstöðinni er gert ráð fyrir að úrkomumagn geti orðið allt að nífalt það sem gerist að meðalári að jafnaði yfir tíu daga um þetta leyti árs, að því er fram kemur í færslu Einars á Facebook í dag.
„Ef við horfum á samantekna spá næstu tíu daga þá er þetta ansi mikil úrkoma svona heilt yfir. En það þýðir þó ekki að það verði rigning alla dagana. Það lítur til dæmis út fyrir að undir lok vikunnar að það komi einn ágætur dagur um land allt þar sem verður að mestu leyti þurrt og sjái jafnvel til sólar vestanlands. En það er líka eini dagurinn sem er í þeim flokki.“
Einar segir sumarið hafa verið sveiflukennt hingað til. Til að byrja með hafi verið kalt en að undanförnu hafi farið að hlýna. Hann segir of snemmt að gefa sumrinu einkunn þar sem það sé einungis hálfnað. Aðspurður segir Einar erfitt að segja til um hvernig veðrið verður næstu vikur.
„Þetta er allavega staðan núna og eitthvað sem líklegt er að verði næstu átta til tíu daga. Landsmenn eru margir í fríum á þessum tíma, ætli það sé ekki hámark sumarleyfanna á næstu tveimur til þremur vikum. Þannig að þeir sem vilja elta veðrið vita hvert þeir eiga að fara.“