“Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands segir að hún óttist að Ísland muni standa frammi fyrir „Brexit-augnabliki“ í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þetta segir utanríkisráðherrann í viðtali við The Guardian. Þar varar Þorgerður jafnframt við því að rangfærslur, erlend afskipti og gervigreind gætu haft áhrif á umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram 29. ágúst.
Þá sakar hún einstaklinga og hópa innanlands sem utan um hræðsluáróður og segir orðræðuna minna á aðferðir Nigel Farage og flokks hans Reform UK.
Óttast Brexit-augnablik
„Ég óttast að við munum standa frammi fyrir Brexit-augnabliki,“ segir Þorgerður. Að hennar mati sé það hættuleg þróun þar sem „alls kyns ósannindi“ hefðu verið sett fram í Brexit-baráttunni í Bretlandi.
Þá segir hún Brexit vera dæmi um hvernig ekki ætti að reka herferð.
„Ekkert af því sem lofað var hefur í raun orðið að veruleika.“
Breytt staða í alþjóðamálum
Í viðtalinu er snert á því að ríkisstjórn Íslands hefði áður ekki stefnt að þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr en árið 2027. Að sögn Þorgerðar breyttist það vegna breyttrar stöðu í alþjóðamálum, m.a. vegna yfirlýsinga Bandaríkjamanna um Grænland.
„Maður kemur ekki fram við vin og bandamann, eins og Grænland og Danmörku, eins og Bandaríkin gerðu í byrjun þessa árs.“
Þorgerður ítrekar þó í viðtalinu að samband Íslands við Bandaríkin sé áfram sterkt.
„Aðild Íslands að ESB stangast ekki á við allt það góða samband við Bandaríkin. Eitt útilokar ekki annað.“