„Þegar ég var atvinnumaður í handbolta í Danmörku hafði ég óþarflega mikinn frítíma. Við bjuggum í húsi með stórum garði og garðurinn var tómur. Ég fór í Bauhaus og keypti ódýrustu verkfærin sem ég gat fengið og fór svo að fikta mig áfram í að smíða útihúsgögn," segir Ágúst Elí Björgvinsson húsgagnaframleiðandi og handboltamaður á Akureyri.
Þetta fikt sem hann kallar svo hefur heldur betur undið upp á sig því nú er hann kominn með lítið verkstæði á Akureyri þar sem hann framleiðir húsgögn og fleiri nytjahluti úr tré. Ágúst hannar undir nafninu by björgvinsson.
Samhliða smíðunum ver Ágúst Elí mark KA-manna í Olísdeildinni. Hann sneri heim úr atvinnumennsku í Danmörku í desember í fyrra og á að auki 53 landsleiki að baki fyrir Ísland. Hann segir handboltann og handverkið fara vel saman.
„Það er nauðsynlegt að hafa eitthvað við að vera milli æfinga og ég er ekki sá eini í liðinu sem er í öðru utan vallar.“