Traustið milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er algjörlega horfið, segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Hún rekur það til starfa Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra SA, og viðræðna samtakanna við VR eftir að samningar náðust við Breiðfylkinguna í síðustu viku.
Völdu ófrið við Eflingu og það hefur afleiðingar
Sólveig Anna skrifar færslu á Facebook þar sem hún lýsir trúnaðarbresti og fer hörðum orðum um framkvæmdastjóra SA og forystu VR.
„Samtök atvinnulífsins hafa valið ófrið við Eflingu frekar en að halda áfram tilraun Sigríðar Margrétar til heiðarlegra samskipta við langstærsta félag verkafólks á landinu, það félag sem ætlast er til að geri mótandi kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.“
Sólveig Anna segir að þessu fylgi afleiðingar. Næstu kjarasamningar séu ekki langt undan og þá komi með skýrum hætti í ljós hvernig SA ætli að takast að tryggja frið á vinnumarkaði með algjöru rofi í sambandi og trausti við Eflingu. „Ég spái því að það muni ekki ganga vel.“
Segir VR umbunað fyrir ábyrgðarleysi
Breiðfylking Eflingar, Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Byggiðnar samdi við Samtök atvinnulífsins um að láta samninga halda þrátt fyrir forsendubrest. Það gerðist eftir samtöl við forsætisráðherra þar sem farið var yfir aðgerðir stjórnvalda til að styðja við samninga.
VR og Fagfélögin héldu áfram viðræðum við SA fram á síðustu stundu. Það er Sólveig Anna ósátt við og segir að í stað þess að halda trúnað við Breiðfylkinguna hafi SA umbunað þeim sem hún segir hafa sýnt fullkomið ábyrgðarleysi og þverbrotið allar lágmarksreglur í samskiptum aðila vinnumarkaðarins.
Treystu Sigríði Margréti en ekki Bjarna
Sólveig Anna segir að Sigríður Margrét Oddsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hafi skilið að mikilvægt væri að fólk treysti því að orð stæðu og að mótaðilinn kæmi fram af heiðarleika. Á hennar tíma hafi byggst upp viðkvæmt traust því hún hafi komið fram við Eflingu af virðingu.
„Nú er það traust algjörlega horfið. Bjarni Benediktsson hefur ekki verið lengi í starfi framkvæmdastjóra SA, en sá tími hefur dugað til að stroka það út svo ekkert er eftir.“
Sólveig Anna segir hann hafa beitt klækjastjórnmálum í stað raunverulegra samningaviðræðna. Hún segir hann koma úr heimi þar sem orð séu bara verkfæri en ekki lýsing á raunveruleikanum.
„Hann kemur úr blekkingar- og speglasal atvinnustjórnmálanna og viðurkennir ekki að þvælan sem þar viðgengst á ekki heima við samningaborð atvinnurekenda og vinnuafls, þar sem fjallað og tekist er á um raunveruleikann.“
Fáránleg revía
Hún segir að trúnaður við Eflingu hafi verið svikinn „og þeim sem ekkert lögðu til málanna annað en upphrópanir og algjört ábyrgðarleysi var launað, með þátttöku SA í fáránlegri revíu VR og co, og að öllum líkindum samkomulagi sem nú er geymt í dýpstu skúffu embættis ríkissáttasemjara“.