Líkin geymdu bræðurnir í frystikistum í skúr í Turku í suðvestanverðu Finnlandi. Foreldrarnir létust af náttúrulegum orsökum um miðjan tíunda áratuginn. Þegar lögregla finn líkin var slökkt á öðrum frystum og hafði líklega verið lengi.
Bræðurnir héldu því fram að foreldar þeirra hefðu óskað eftir því að lík þeirra yrðu fryst. Dómstóllinn taldi það ekki duga til þess að sýkna þá þar sem þeir hefðu brotið lög um friðhelgi grafa með því að fela ógrafin lík.
Eldri bróðirinn, sem er 81 árs gamall menntaður læknir, er sagður hafa sótt líkin árið 1995, annað þeirra á sjúkrahús og hitt á meinafræðideild Háskólans í Turku, að því er segir í frétt finnska ríkisútvarpsins.
Líkin fundust árið 2024 í frystikistunum í skúr við húsnæði fyrirtækis sem eldri bróðirinn átti og var sagt bjóða upp á útfararþjónustu. Lögregla gerði leit þar eftir að eldri bróðirinn var staðinn að því að grafa upp fjölskylduleiði.
Dómstóllinn gerði eldri bróðurnum að greiða tvö þúsund evra sekt, jafnvirði rúmra 274 þúsund íslenskra króna. Yngri bróðirinn var sektaður um 640 evrur, jafnvirði tæpra 88 þúsund íslenskra króna.