Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, hafa eytt traustinu sem byggðist upp milli Eflingar og samtakanna í tíð forvera hans. Hún sakar SA um að svíkja trúnað við félagið og varar við afleiðingum þegar sest verður að samningaborðinu á ný.
Þetta kemur fram í færslu Sólveigar Önnu á Facebook í kjölfar samkomulags um áframhaldandi gildi kjarasamninga í síðustu viku. Efling, Starfsgreinasambandið og Samiðn höfðu þegar náð samkomulagi við SA þegar VR og fagfélögin sömdu á fimmtudag. Samkomulag þeirra felur meðal annars í sér heimild til að stytta gildistíma kjarasamninga ef verðbólguviðmið standast ekki á næsta ári.
Sólveig telur SA hafa umbunað framgöngu VR og fagfélaganna á kostnað þeirra sem höfðu þegar ákveðið að halda samningunum í gildi.
Segir orð Sigríðar Margrétar hafa staðist
Í færslunni ber Sólveig framgöngu Bjarna saman við samskipti Eflingar við Sigríði Margréti Oddsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra SA. Hún segir að þótt ágreiningur hafi oft verið mikill hafi verið hægt að treysta því sem Sigríður Margrét sagði.
„Við tókumst á, oft af hörku, en hún var heiðarleg og sinnti hlutverki sínu af metnaði. Þegar hún sagði eitthvað var hægt að treysta orðum hennar.“
Sólveig segir virðingu Sigríðar Margrétar fyrir Eflingu hafa lagt grunn að viðkvæmu trausti. Það hafi verið ein af forsendum þess að hægt var að gera kjarasamninga á almennum vinnumarkaði árið 2024 án verkfallsátaka.
Nú sé staðan gjörbreytt.
„Nú er það traust algjörlega horfið. Bjarni Benediktsson hefur ekki verið lengi í starfi framkvæmdastjóra SA, en sá tími hefur dugað til að stroka það út svo ekkert er eftir.“
Sakar Bjarna um vinnubrögð úr „klækja stjórnmálunum“
Sólveig segir Bjarna hafa flutt vinnubrögð úr stjórnmálum inn í samskipti aðila vinnumarkaðarins. Í stað virðingar og heiðarleika hafi Eflingu verið boðin framganga „beint úr klækja stjórnmálunum“.
„Nýr framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins kemur úr heimi þar sem að orð eru bara verkfæri, ekki lýsing á raunveruleikanum, þar sem skýrar reglur eru ekki til og þær reglur sem þó eru til staðar eru aðeins til að brjóta.“
Hún leggur áherslu á að þótt atvinnurekendur og verkafólk hafi ólíka hagsmuni verði ákveðnar grunnreglur að gilda við samningaborðið. Þar skipti mestu að orð standi, tilboð séu raunveruleg og mótaðilar komi fram af heiðarleika.
Telur ábyrgð Eflingar hafa verið svarað með svikum
Sólveig segir stjórn og trúnaðarráð Eflingar hafa valið ábyrgð og stöðugleika þegar ákveðið var að halda kjarasamningunum í gildi. Ákvörðunin hafi byggst á mati á raunverulegri stöðu þjóðfélagsins.
Í stað þess að sú afstaða væri virt hafi trúnaður við félagið verið svikinn. SA hafi tekið þátt í því sem hún kallar „fáránlega revíu VR og co“ og umbunað þeim sem að hennar mati lögðu ekkert til málanna annað en upphrópanir og ábyrgðarleysi.
SA hafa lýst niðurstöðunni með öðrum hætti. Í yfirlýsingu samtakanna 8. október sagði Bjarni að allir aðilar hefðu sýnt ábyrgð með því að halda kjarasamningunum í gildi. Niðurstaðan styrkti grundvöll lægri verðbólgu og vaxta.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hafnaði einnig fyrri ásökunum Sólveigar í Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Hún sagðist vera að sinna starfi sínu fyrir sitt félag.
Varar við afleiðingum í næstu kjaraviðræðum
Sólveig segir SA hafa valið ófrið við Eflingu fremur en að halda áfram þeirri tilraun til heiðarlegra samskipta sem hún telur Sigríði Margréti hafa staðið fyrir.
„Þessu fylgja afleiðingar.“
Hún segir að í næstu kjaraviðræðum muni reyna á hvernig samtökin hyggist tryggja frið á vinnumarkaði eftir það sem hún lýsir sem algjöru rofi á sambandi og trausti við Eflingu.
„Ég spái því að það muni ekki ganga vel.“