Lögreglu hafa borist nýjar tilkynningar í morgun um að bílar hafi verið rispaðir. Þessu greindi Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi frá í Morgunútvarpinu á Rás 2.
„Það eru einhverjar nýjar tilkynningar í morgun og við getum sagt nýjar vísbendingar sem við erum að skoða.“
Í samtali við fréttastofu segir hann svo virðast sem einn maður sé að verki, þó ekki sé hægt að slá því föstu. Einn maður hafi náðst á upptöku, sem var birt á Vísi um helgina, þar sem hann virðist rispa bíl.
Guðmundur Pétur segir lögreglu hafa borist sex til átta tilkynningar um að bílar hefðu verið skemmdir með þessum hætti í miðborg, Vesturbæ og Austurborg Reykjavíkur. Hann sagði að tilvikin gætu verið fleiri og hvatti fólk til að láta lögreglu vita ef svo væri.
Flest atvikin hafi verið svipuð að undanskildu einu þar sem hakakross var rispaður á hlið bíls.
Guðmundur Pétur sagði ekkert hafa komið fram sem benti til þess að skemmdarverkin tengdust samfélagsmiðlanotkun og uppákomum sem þeim tengjast. Maðurinn sem hafi náðst á upptöku virðist vera um eða yfir tvítugu og einn síns liðs. Skemmdarverkin virðist vera tilefnislaus og handahófskennd.
„Miðað við þær vísbendingar sem komnar eru þá held ég að þetta sé frekar bundið við einhvern einn aðila sem er bara að flakka. Það er alltaf ákveðinn hópur af fólki sem er að flakka um göturnar og leita að tækifærum. Sumir eru að stela og aðrir að skemma.“
Hakakross var rispaður á einn bíl en á öðrum bílum eru annars konar rispur. Guðmundur Pétur sagði að verksummerkin bentu til þess að þetta væri einhver í hærri kantinum, allavega ekki smákrakki að verki.
Fréttin hefur verið uppfærð með frekari svörum frá Guðmundi Pétri.