Formaður Sameykis segir umfangsmiklar skipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar einkennast af þekkingar- og samráðsleysi hjá meirihlutanum í borgarstjórn. Oddvitar meirihlutans og sviðsstjórar sviðanna tveggja kynntu breytingarnar fyrir starfsfólki á fundi í morgun.
Breytingarnar voru samþykktar í borgarráði í gær. Á níunda tug var sagt upp en 32 þeirra boðið annað starf. Hverfamiðstöðvarnar fjórar verða lagðar niður sem og fjórar frístundamiðstöðvar auk Keðjunnar og Virknihúss. Frá áramótum verður barna- og fjölskylduþjónusta - og skóla- og frístundaþjónusta í Borgartúni. Félags- og húsnæðisþjónusta verður á Bíldshöfða. Þá verður Alþjóðateymi lagt niður.
Vonbrigði og sárindi gagnvart nýja meirihlutanum
Kári Sigurðsson formaður Sameykis sat fundinn í morgun. Andrúmslofið hafi verið þungt og fljótt augljóst að þarna var ýmislegt sem kom oddvitum meirihlutans á óvart og samráð lítið. Starsfólk hafi verið mjög reitt og sárt.
„Og bara vonbrigðin og sárindin gagnvart þessum nýja meirihluta að fara í þetta verkefni,“ segir hann. „Framkvæmdin, samráðs- og þekkingarleysið á þessum málaflokkum skín í gegn í tali þeirra,“ segir Kári.
„Stendur ekki steinn yfir steini varðandi þessar lausnir“
Oddvitar meirihlutans hafi talað fjálglega bæði á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum um hvernig leysa eigi málin. „En svo kemur í ljós á þessum fundi í morgun að það stendur ekki steinn yfir steini varðandi þessar lausnir sem þau töluðu um, um hvernig mæta eigi fólki í nærþjónustunni,“ segir hann.
Ekki liggi fyrir hvernig eigi að sinna ákveðnum hópum með miklar sérþarfir. Þjónustu sem ekki sé hægt að sinna inni á heimilum. Félagsráðgjafar hafi bent á það á fundinum að til að mynda séu tveir útgangar og neyðarhnappar í sumum viðtalsherbergjum af ástæðu.
Þjónustan færist raunar fjær fólkinu. „Þá er í reynd verið að safna stærri hóp, öllum í viðkvæmasta hópnum í Reykjavík, saman og á sama staðinn,“ segir Kári og bætir við að hann sjái ekki hvernig það eigi að ganga upp.
„Ekki nóg fyrir borgarfulltrúa að skoða Excel-skjal“
Talmeinafræðingar og sálfræðingar sem starfa til að mynda á Suðurmiðstöð í Breiðholti vöktu athygli á því á fundinum að engin aðstaða sé fyrir þá í skólunum. „Það er ekki nóg fyrir borgarfulltrúa að skoða Excel-skjal og sjá hvar er laust pláss eða vannýtt pláss og yfirfara það yfir á öll hverfi,“ segir Kári.
Hann segir það þvílíka vanþekkingu að áætla að allir þurfi sömu þjónustuna í borginni.
„Það er himinn og haf á milli þjónustuþarfar fólks sem býr í Breiðholtinu og fólks sem býr í Vesturbænum, ég ætla bara að segja það eins og það er,“ segir Kári.
Ekki millistjórnendur sem sitji við tölvu og nagi blýanta heldur sinni fólki
Fulltrúar meirihlutans hafa talað um að minnka yfirbygginguna og fækka stjórnendum og millistjórnendum. Kári segir starfsfólkið sem um ræðir í þessu tilfelli ekki fólk sem nagar blýanta og hangir á skrifstofu allan daginn. Þau þjónusti viðkvæmustu hópana.
„Og það er algjörlega óboðlegt að halda þessari ímynd á lofti í fjölmiðlunum,“ segir hann.
„Þau eru ekki búin að eiga þriggja mánaða sambandsafmæli“
Þá gerir Kári athugasemdir við það að borgarstjóri og oddvitar Framsóknar og Viðreisnar haldi því fram að að baki breytingunum liggi margra mánaða undirbúningur. Meirihlutinn hafi tekið við fyrir þremur mánuðum. „Þau eru ekki búin að eiga þriggja mánaða sambandsafmæli,“ segir Kári.
„Það er ekki margra mánaða undirbúningur sem hefur farið fram. Trúverðugleiki með þessari framkvæmd er enginn, í mínum huga og í hugum fólksins, sem sat hérna inni á fundi, er hann enginn,“ segir Kári.
Kári segir yfirlýsingar Hildar Björnsdóttur borgarstjóra, um að breytingarnar séu aðeins brot af því sem koma skal í hagræðingu, falla í grýttan jarðveg hjá starfsfólki.
„Þau taka mjög illa í þessar yfirlýsingar,“ segir Kári. Breytingarnar séu bæði illa ígrundaðar og án samráðs við fólkið sem sinnir þjónustunni og nýtir sér hana.
Kvíðinn fyrir hönd annarra sviða
„Það er ekki búið að tala við neitt af þessum hópum og ég kvíði því fyrir hönd annarra sviða í borginni að sama verði uppi á teningnum í næstu aðgerðum hjá þeim,“ segir Kári. Hann segir starfsfólk óttast það sem koma skal.
„Að sjálfsögðu, þú getur rétt ímyndað þér að vinna á vinnustað þar sem æðsti yfirmaður, borgarstjóri, talar svona,“ segir hann.
„Og ég er hræddur um það að það sé fullt af hæfu og flottu fólki sem er starfandi í borginni sem er að fara að leita annað núna,“ segir Kári.