Talið er að maður hafi spreyjað efni á hraðbanka sem var á jarðhæð byggingarnnar. Umrætt efni er talið hafa innihaldið kapsaísín, sem finnst meðal annars í eldpipar.
Hinn grunaði er enn ófundinn.
AFP-fréttastofan hefur eftir sjötugri konu að þegar hún hafi nálgast hraðbankann hafi hún fundið fyrir sársauka, og síðar dofa. Fyrst hélt hún að eldur væri í nágrenninu.
Verslunarmiðstöðin var rýmd og götum í kringum hana lokað.