Leikkonan Sydney Sweeney gæti stefnt ferli sínum í hættu ef hún heldur áfram að taka að sér mjög kynferðisleg hlutverk, að mati sérfræðinga í krísustjórnun og ímyndarmálum.
Umræðan hefur magnast í kjölfar nýjustu þáttaraðar HBO-þáttanna Euphoria, þar sem persóna hennar, Cassie, birtist í sífellt öfgakenndari og umdeildari atriðum eins og DV hefur meðal annars fjallað um.
Sjá einnig: Sydney Sweeney setti allt á hliðina í gærkvöldi með þessu atriði í Euphoria
Í nýju þáttaröðinni hefur Cassie til dæmist færst sífellt dýpra inn í heim umdeildrar netfrægðar og kynferðislegs efnis á netinu.
Sérfræðingurinn Dave Quast sagði í samtali við Fox News að þátttaka Sweeney í Euphoria hefði vissulega hjálpað henni að festa sig í sessi sem djörf og óhrædd leikkona, bæði líkamlega og tilfinningalega. Hann varaði þó við því að of mikil áhersla á kynferðislega ímynd gæti farið að skyggja á sjálfan leik hennar.
„Vandamálið er ekki að hún leiki kynferðisleg hlutverk,“ sagði Quast en bætti við að mikilvægt væri fyrir leikkonuna að þessi hlutverk verði ekki það sem mótar alla ímynd hennar.
Þriðja og síðasta sería Euphoria hefur vakið mikla athygli og einnig hörð viðbrögð frá hluta aðdáenda. Sumir hafa gagnrýnt þáttahöfundinn Sam Levinson fyrir að ganga of langt í notkun nektar, ofbeldis og ögrandi myndefnis.
Sérstaklega hefur verið deilt um atriði þar sem nasistatákn birtast í tengslum við persónur þáttanna. Í einni senu fær persónan Faye Valentine, leikin af Chloe Cherry, hakakross húðflúraðan á bakið. Aðdáendur hafa gagnrýnt notkun slíkra tákna og sagt þau hafa litla sem enga þýðingu fyrir söguþráðinn.
Á sama tíma hafa margir áhorfendur lýst yfir óánægju með þróun persónu Cassie. Í nýjustu þáttunum sést hún meðal annars klædd upp í gervi fullorðinsbarns og síðar taka þátt í svokölluðu „puppy play“, þar sem hún birtist í hundabúningi og nærfötum. Atriðin hafa vakið bæði hneykslun og háværar umræður á samfélagsmiðlum.
Levinson hefur hins vegar varið efnistök þáttanna. Í viðtali við The Hollywood Reporter sagði hann að markmiðið væri að bæta ákveðnum absúrd húmor inn í atriðin til að brjóta upp fantasíuheim persónanna og skapa fjarlægð frá efninu.