Einn sjúkrabíll og sexhjól slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út að Helgafelli fyrr í dag eftir að kona hafði slasað sig illa á göngu um svæðið.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu hafði konan snúið sig illa á ökkla og lék grunur á beinbroti.
Sexhjól var notað til að sækja konuna, sem hafði þó náð að færa sig nær veginum, og tók útkallið því ekki langan tíma.
Konan var í kjölfarið flutt á slysadeild Landspítalans.