Dr. Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands, rifjaði í færslu á Facebook í gær upp ræðu sem Ólafur Ragnar Grímsson, þá forseti, flutti á fundi hjá Sagnfræðingafélaginu 10. janúar 2006, þar sem hann lofsöng útrásarvíkingana og tíndi til tíu ástæður þess að Íslendingar væru svo miklu betri og klárari en allir aðrir. Sigurður Gylfi birti sama daginn pistil á kistan.is, sem ekki er lengur í loftinu, þar sem hann fór hörðum orðum um málflutning forsetans.
Sigurður Gylfi Magnússon: Inntakið hjá Ólafi Ragnari hið sama og þegar hann lofsöng útrásarvíkingana fyrir hrun