Ekkert skipulegt eftirlit er með því hér á landi hvað það er sem veldur byggingargöllum hér á landi, á borð við myglu og leka. Samkvæmt norskum tölum stafa 60% byggingargalla þar í landi af vinnulagi, 30% vegna hönnunar og 10% vegna sjálfrar vörunnar. Engin ástæða er til að ætla að Ísland sé frábrugðið. Við þurfum að sammælast um vinnulag og byggingaraðferðir. Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:
Sigurður Brynjar Pálsson: Við vitum ekkert af hverju byggingar eru gallaðar – enginn sem heldur utan um það