Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir ekki koma á óvart að kærunefnd útlendingamála hafi fellt úr gildi ákvörðun um brottvísun albansks ríkisborgara sem dæmdur var fyrir manndráp og vopnalagabrot í heimalandi sínu.Maðurinn hefur jafnframt ítrekað brotið gegn íslenskum útlendingalögum og er nú grunaður um kynferðisbrot gegn barni hér á landi, eins og DV greindi frá á föstudag.
Sigríður vill ekki vísa Albananum úr landi strax – Vill að sakamálið verði útkljáð fyrst