Dómsmálaráðuneytið vill nær tvöfalda framfærslukröfu fyrir dvalarleyfi útlendinga: Fyrir einstakling myndi hún hækka úr 259.951 krónum í 501.186 krónur á mánuði. Alls voru skráðar 1.828 umsagnir í Samráðsgátt og á X hafa notendur haldið því fram að umsagnirnar séu að mestu frá útlendingum.
Samráðinu lauk 16. nóvember og voru 1.072 umsagnir skráðar á lokadegi þess. Fjórar umsagnir til viðbótar voru skráðar eftir miðnætti, samkvæmt samantekt úr gögnum Samráðsgáttar. Niðurstöður samráðsins eru í vinnslu.
Hærri kröfur fyrir fjölskyldur og námsmenn
Drög ráðuneytisins snerta bæði umsóknir um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt. Með framfærslukröfu er átt við þá fjárhæð sem umsækjandi þarf að sýna fram á til að uppfylla skilyrði um framfærslu.
Fyrir einstætt foreldri með tvö börn myndi viðmiðið hækka í 801.897 krónur á mánuði, eða um 208 prósent. Fyrir barnlaus hjón yrði það sömu upphæð, en 1.102.609 krónur fyrir hjón með tvö börn.
Viðmið fyrir námsmenn og doktorsnema myndi hækka úr 259.951 krónu í 375.890 krónur á mánuði. Reglurnar ná ekki til dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða.
Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 og gildi einnig um umsóknir sem þá eru óafgreiddar. Ráðuneytið segir að engin dvalarleyfi falli sjálfkrafa úr gildi. Heimilt yrði að endurnýja leyfi á fyrri grundvelli í allt að tólf mánuði við tiltekin skilyrði.
ASÍ og HÍ gagnrýna drögin
Alþýðusamband Íslands segir áhyggjuefni að fyrirhugað viðmið fyrir einstakling sé hærra en lægstu kjarasamningsbundnu laun fyrir fullt starf. Sambandið telur óásættanlegt að slík laun nægi ekki til að uppfylla skilyrði fyrir áframhaldandi dvöl eða ríkisborgararétti.
Háskóli Íslands óskar meðal annars skýringa á því hvort miða eigi við laun fyrir eða eftir skatt. Háskólinn leggur einnig áherslu á að nemendur sem þegar hafa hafið nám geti lokið því samkvæmt fyrri skilyrðum.
Hvatti íslenska vini og fjölskyldur til að skrifa
Marion Poilvez, doktorsnemi við Háskóla Íslands, sendi inn umsögn 14. nóvember. Hún telur að hærri viðmið bitni sérstaklega á innflytjendakonum og einstæðum mæðrum.
Á skjáskoti af Facebook-færslu hvetur hún fólk til að biðja fjölskyldu og vini um að senda athugasemdir, sérstaklega ef þau eru íslensk.

Marion segir í umsögn sinni að hún sé ríkisborgari ESB og að umsókn hennar um íslenskan ríkisborgararétt sé í vinnslu. Hún óttast að nýju skilyrðin leiði til þess að henni verði hafnað. Hún segist aldrei hafa haft svo há laun, en heldur aldrei þegið félagslega aðstoð.