Nafn dóttur hennar notað til að senda hótanir - Vísir

Nafn dóttur hennar notað til að senda hótanir - Vísir

Nafn dóttur hennar notað til að senda hótanir - Vísir

„Málið er að þetta voru ótrúlega margar tilviljanir. Í sumar fæ ég símtal frá forvarnarráðgjafa Hafnarfjarðarbæjar, hún vissi hver ég væri og dóttir mín því að hún var í ungmennaráði,“ segir Karólína Helga Símonardóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og varaþingmaður fyrir Viðreisn.

Ástæða símtalsins var að nafn dóttur Karólínu hafði komið ítrekað upp í umræðum Götuvitans. Þar kom fram að hún hefði ítrekað sóst í samskipti í gegnum samfélagsmiðla við hættulega einstaklinga og leitaði eftir athygli frá þeim.

„Ég kem alveg af fjöllum og fæ sjokk,“ segir Karólína.

Í kjölfar símtalsins ákveður hún að ræða við dóttur sína eftir að hafa fengið nánari ráðleggingar um hvernig væri best að nálgast málið. Karólína segist hafa byrjað rólega og útskýrt að það þurfi ekki allir að vera vinir manns á samfélagsmiðlum. 

„Hún skilur ekkert hvað ég er að tala um og hún spyr „mamma, hvað ertu að tala um?“

Fylgdi hættulegum einstaklingum

Karólína krafðist þess að dóttir hennar myndi sýna henni alla aðganga sína á samfélagsmiðlum en eftir að hafa skoðað þá sá hún engar vísbendingar um þessi meintu samskipti. Hún hafði því aftur samband við ráðgjafann og spurði hvort það væri ef til vill uppi einhver misskilningur um málið.

„Hún er eina sem heitir þessu nafni í hennar árgangi, í eiginlega marga áratugi,“ segir Karólína.

„Ég skil ekkert og fletti upp nafninu hennar á Instagram. Þá var hún sjálf ekkert mjög virk á Instagram. Þá kemur upp nafnið hennar en mynd af öðrum einstaklingi. Mér fannst þetta ótrúlega skrýtið en ég tilkynnti þetta strax til Meta, en af því að það er ekki mynd af henni er það ekki næg ástæða til að taka aðganginn niður.“

Þessi falski aðgangur hafði sent vinabeiðni til fjölda kunningja dóttur hennar, sérstaklega til þeirra sem stunduðu íþróttina sem hún æfði. Einnig hafi reikningurinn verið að fylgja hættulegum einstaklingum sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Að endingu hafi dóttirin fengið vini sína til að tilkynna aðganginn í þeirri von um að hann yrði tekinn niður.

Sendi strák hótanir í nafni hennar

Sumarið leið en í lok sumars setti stúlka sig í samband við Karólínu og spurði hvort hún væri mamma dóttur hennar. Stúlkan segir að dóttir Karólínu hafi verið að senda vini sínum óviðeigandi og ógeðsleg skilaboð. Það reyndist vera gerviaðgangurinn.

„Ég fór að tala við hana og við skoðuðum þetta betur og þá er sem sagt líka gerviaðgangur á Snapchat sem er að eiga í samskiptum þar inni og á TikTok og Instagram,“ segir Karólína.

Fyrst um sinn hafi skilaboðin verið eins konar „catfish-skilaboð“ sem eru þegar einhver reynir við annan undir fölsku forsendum. Síðan hafi aðilinn, eða gervigreindin, orðið reiður og sent stráknum alls konar hótanir auk þess að kalla hann ógeðslegan og ömurlegan. 

„Henni leið náttúrulega ótrúlega illa út af því að þetta er náttúrulega bara mannorðið hennar þarna undir. Einhverjir krakkar sem þekkja hana ekki beint halda að hún sé ógeðslega vondur einstaklingur,“ segir hún.

„Þetta voru fáránlegar aðstæður sem voru þarna á tímabili og maður vissi ekki hver þetta væri og hvort þetta væri mjög hættulegur einstaklingur.“

Þegar Karólína skoðaði málið nánar kom í ljós að lítið merki hafði verið á myndinni. Slíkt sé til þess gert svo að ekki sé hægt að leita að myndinni á netinu og þannig sé erfiðara að komast að því hver er á henni. Það sé merki um að gervigreind hafi staðið þar að baki. Sömuleiðis talaði viðkomandi íslensku sem var þó bjöguð.

Gervigreind eða manneskja

Karólína hefði aldrei frétt af málinu hefði forvarnarfulltrúinn ekki haft samband auk þess sem aðgangurinn fylgdi aldrei neinum sem var náinn dóttur hennar. Þá efaðist hún um að tilkynna málið til lögreglu þar sem hún var ekki viss um alvarleika þess. Hins vegar ráðlagði hún börnunum sem urðu fyrir hótunum að leita til lögreglunnar.

„Út af þessum krökkum sem höfðu samband við mig, af því að hann átti raunverulega myndir af samskiptum með hótunum og öðru slíku, þá gátu þau tilkynnt þetta sem var tekið alvarlega hjá Meta,“ segir hún. 

„Síðast þegar ég vissi var þessi aðgangur farinn og ég vona að hann sé farinn. Þetta er rosalega óhugnanlegt.“

Mæðgurnar muni hins vegar líklegast aldrei komast að því hvort að raunveruleg manneskja standi að baki aðgöngunum eða gervigreind. 

„Maður vill einhvern veginn alltaf finna sökudólg og það fyrsta sem ég hugsaði var að ef það er einhver þarna úti sem líður raunverulega svona illa að þurfa að fara þessa leið þá þarf þessi manneskja bara að fá aðstoð. Þetta eru bara börn.“

Það sé eins konar brot á einkalífi dóttur hennar að þurfa að verja mannorð sitt út af einhverjum aðstæðum sem hún hefur enga stjórn á.

Vantraust gagnvart samfélaginu

Karólína telur að umræðan sem eigi sér stað inni á Alþingi núna um fyrirhugað samfélagsmiðlabann barna sé mikilvæg. Frumvarpið fór í gegnum fyrstu umræðu á þinginu í dag og var vísað til velferðarnefndar til meðferðar.

„Ég er í flokki frelsis en ég hugsa sem betur fer að dóttir mín er þroskuð og komin á þann aldur að hún getur lesið í þetta og staðið með sjálfri sér og veit alveg hver hún er. En maður hugsar um barn sem er þrettán eða fjórtán ára sem er ekki byrjað að læra almenn samskipti eða getur lesið úr hvað er gerviaðgangur, hvað eru eðlileg samskipti, hvar eru mörkin þeirra,“ segir hún.

Börn séu misþroskuð og misupplýst. Það komi í hlut fullorðna fólksins að taka ábyrgð og sjá til þess að þau geri sér grein fyrir hættunum sem fylgja því að vera á samfélagsmiðlum.

„Þetta er ekki eitthvað vantraust gagnvart eigin barni. Þetta er vantraust út af öllu því sem er að gerast í samfélaginu.“

#dóttur #hennar #nafn #notað #til

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262963689d/nafn-dottur-hennar-notad-til-ad-senda-hotanir

📰 Aðrar fréttir

Guðfaðirinn er látinn: Glæpaveldið sem hann byggði upp breytti Mexíkó fyrir fullt og allt
📅 16.11.2026 👁️ 2
Guðfaðirinn er látinn: Glæpaveldið sem hann byggði upp breytti Mexíkó fyrir fullt og allt
Miguel Ángel Félix Gallardo, einn alræmdasti fíkniefnabarón sögunnar og maðurinn sem lagði grunninn að valdamestu glæpasamtökum Mexíkó, er látinn, 80 ...
'Complete reset' needed to get young people into work, says Milburn review
📅 16.11.2026 👁️ 2
'Complete reset' needed to get young people into work, says Milburn review
Alan Milburn's review will call for sweeping reforms to the education, work and welfare systems.
Tæknivandræði hjá stórum bönkum í Bandaríkjunum
📅 16.11.2026 👁️ 1
Tæknivandræði hjá stórum bönkum í Bandaríkjunum
Viðskiptavinir stórra banka í Bandaríkjunum, þar á meðal Bank of America, JP Morgan Chase og Wells Fargo, hafa tilkynnt vandamál með þjónustu bankanna...
Cass report author says she does not support draft conversion practices bill
📅 16.11.2026 👁️ 2
Cass report author says she does not support draft conversion practices bill
The gender care review author says the bill’s wording risks "serious unintended consequences" for parents and therapists.
Ár­bæjar­skóli er sigur­vegari Skrekks 2026 - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 1
Ár­bæjar­skóli er sigur­vegari Skrekks 2026 - Vísir
Í Skrekk fá unglingar í grunnskólum Reykjavíkur á ári hverju að vinna með hugmyndir sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins fyrir h...
Grét þegar hún varði Jón vantrausti - „Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu“
📅 16.11.2026 👁️ 1
Grét þegar hún varði Jón vantrausti - „Ég hefði átt að standa með eigin sannfæringu“
Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður Vinstri grænna kemur Ingvari Þóroddssyni, sem flutti sig í dag úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn, til varnar. Hún m...
Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“
📅 16.11.2026 👁️ 1
Óhugnanlegt fyrirbæri sem milljónir hafa upplifað – „Þetta virðist svo raunverulegt“
Þegar Baland Jalal var ungur maður í Kaupmannahöfn varð hann fyrir upplifun sem hann gleymir seint. Hann lá í rúminu sínu þegar honum fannst draugur v...
Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum
📅 16.11.2026 👁️ 1
Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum
Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að bandaríski kynferðisbrotamaðurinn Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi heldur hafi hann verið ...
Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“
📅 16.11.2026 👁️ 3
Allt vitlaust vegna nýrra Netflix-þátta – „Þetta er nánast klám“
Nýir sjónvarpsþættir á Netflix hafa vakið hörð viðbrögð meðal áhorfenda og trúarhópa, sem saka streymisveituna um að ganga allt of langt í kynferðisle...
Sókn í mennta­málum en á­hyggjur af mögu­legum niður­skurði - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Sókn í mennta­málum en á­hyggjur af mögu­legum niður­skurði - Vísir
Fundurinn fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag en undanfari hans eru tvær tillögur sem samþykktar voru í borgarráði í september. Annars vegar um að le...
Nemendur við MR hundfúlir - Segja námið hafa verið gengisfellt og gagnrýna rektor harðlega
📅 16.11.2026 👁️ 3
Nemendur við MR hundfúlir - Segja námið hafa verið gengisfellt og gagnrýna rektor harðlega
Hópur nemenda við Menntaskólann í Reykjavík (MR) gagnrýnir harðlega breytingar á námi við skólann. Segja nemendurnir að rektor MR hafi ekki hlustað á ...
Segir gögn benda til þess að Epstein hafi verið myrtur - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Segir gögn benda til þess að Epstein hafi verið myrtur - Vísir
Rætt er við réttarlækninn Michael Freeman í fréttaþættinum BBC Newsnight í kvöld. Þar segist Freeman hafa farið yfir gögn réttarlæknis New York-borgar...
Kæmi ekki á óvart ef fleiri fylgdu í kjölfarið
📅 16.11.2026 👁️ 2
Kæmi ekki á óvart ef fleiri fylgdu í kjölfarið
Jón Gnarr þingmaður segir að það kæmi sér ekki á óvart ef fleiri þingmenn Viðreisnar segðu sig úr flokknum. Ingvar Þóroddsson tilkynnti í dag að hann ...
Byrja strax á næsta ári að senda fólk til Rúanda
📅 16.11.2026 👁️ 2
Byrja strax á næsta ári að senda fólk til Rúanda
Danmörk og fjögur önnur Evrópuríki ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afríku strax á næsta ári. Þetta var til...
Ljóst að stundum vanti „landsbyggðargleraugun“ og vonast eftir stefnu­breytingu - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 2
Ljóst að stundum vanti „landsbyggðargleraugun“ og vonast eftir stefnu­breytingu - Vísir
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður norðausturráðs Viðreisnar, segist hafa fyrst frétt af úrsögn Ingvars úr þingflokknum í fréttunum í morgun. „Auð...
Hvað veistu um... sund­laugar? - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... sund­laugar? - Vísir
Í sundlaugunum gefst fólki tækifæri til að slaka á, spjalla og ræða málin, fjarri amstri hversdagsins, símum og samfélagsmiðlum. Sundlaugar landsins e...
Skibidí Ohio er bara eitthvað sem við segjum
📅 16.11.2026 👁️ 3
Skibidí Ohio er bara eitthvað sem við segjum
Dagur íslenskrar tungu er í dag, verðlaun voru veitt og eldri kynslóðir kenndu þeim yngri íslensku.Í hverri viku hittast börn úr Fossvogi sem eru með ...
James Bond: Robert Pattinson to replace Daniel Craig as 007
📅 16.11.2026 👁️ 4
James Bond: Robert Pattinson to replace Daniel Craig as 007
The 40-year old is best known for his role in films including Twilight, The Batman and The Odyssey.
Tourism groups warn of 455,000 fewer flight seats to the Canaries next summer
📅 16.11.2026 👁️ 3
Tourism groups warn of 455,000 fewer flight seats to the Canaries next summer
Tourism groups have warned that airlines are currently planning 455,320 fewer seats to the Canary Islands for summer 2027, a fall of 3.4% compared to ...
Niðurskurður heilbrigðisstofnana óhjákvæmilegur
📅 16.11.2026 👁️ 4
Niðurskurður heilbrigðisstofnana óhjákvæmilegur
Áætlaður rekstrarhalli heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er 5-15 prósent. Forstjórar sex heilbrigðisstofnana, allra nema höfuðborgarsvæðisins, hafa...
Forensic expert says his analysis raises doubts about how Epstein died
📅 16.11.2026 👁️ 4
Forensic expert says his analysis raises doubts about how Epstein died
Professor Michael Freeman tells BBC Newsnight that he believes the convicted sex offender's injuries are consistent with a homicide.
Forensic expert says his analysis of autopsy photos suggest Epstein was killed

Forensic expert says his analysis of autopsy photos suggests Epstein was killed

Réttað aftur yfir Clancy í mars
📅 16.11.2026 👁️ 4
Réttað aftur yfir Clancy í mars
Ný réttarhöld í máli Lindsay Clancy verða haldin í Massachusetts í Bandaríkjunum í mars á næsta ári. Í september ógilti dómari réttarhöld í máli Clanc...
30 milljarða taprekstur kísilvers PCC á Bakka
📅 16.11.2026 👁️ 5
30 milljarða taprekstur kísilvers PCC á Bakka
PCC BakkiSilicon ehf., sem rekur kísilverið á Bakka á Húsavík, var rekið með rúmlega 30 milljarða tapi árið 2025. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrir...
Hélt að Við­reisn væri Sjálf­stæðis­flokkur með „Evróputvisti“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Hélt að Við­reisn væri Sjálf­stæðis­flokkur með „Evróputvisti“ - Vísir
Um mánuði síðar hefur Ingvar, þingmaður Norðausturkjördæmis, skipt um flokk og stokkið úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar segir í viðtali í Rey...
„Al­veg baga­leg vinnu­brögð“ - Vísir

Hætti við áfrýjun og biðst afsökunar – „Ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til“
📅 16.11.2026 👁️ 4
Hætti við áfrýjun og biðst afsökunar – „Ég tilheyrði heimi sem er ekki lengur til“
Franski kvikmyndaleikarinn Gerard Depardieu hefur hætt við áfrýjun sína eftir kynferðisbrotadóm sinn. Þess í stað biður hann fórnarlömb sín afsökunar....
Einar berst fyrir forvörn gegn byrlunum – Missti handlegg í hræðilegu slysi á Spáni
📅 16.11.2026 👁️ 3
Einar berst fyrir forvörn gegn byrlunum – Missti handlegg í hræðilegu slysi á Spáni
Með forvarnarverkefninu Arnarskjöldur er barist fyrir því að rekstraraðilar veitingastaða, bara, hótela og viðburða og verði skyldaðir til að hafa til...
Emma Barnett: Host to leave Radio 4's Today and start new BBC Show
📅 16.11.2026 👁️ 3
Emma Barnett: Host to leave Radio 4's Today and start new BBC Show
Barnett, who has presented Today and Woman's Hour, will front a multiplatform show in the New Year.
Þrýsta á Apple að ýta á hnappinn
📅 16.11.2026 👁️ 5
Þrýsta á Apple að ýta á hnappinn
Almannarómur og Íslandsstofa skora á tæknifyrirtækið Apple að innleiða íslensku í tækjum sínum. Það er eitt stærsta tæknifyrirtækið sem býður hvergi u...
As new Bond, Pattinson takes on one of film's most high-profile roles
📅 16.11.2026 👁️ 4
As new Bond, Pattinson takes on one of film's most high-profile roles
Robert Pattinson has been announced as the next James Bond, becoming the seventh actor to take up the mantle of 007.
Watch: When will we see Robert Pattinson as James Bond?
📅 16.11.2026 👁️ 4
Watch: When will we see Robert Pattinson as James Bond?
Robert Pattinson has been announced as the next James Bond, becoming the seventh actor to take up the mantle of 007.
26,5% samdráttur í sölu á sumarhúsum
📅 16.11.2026 👁️ 5
26,5% samdráttur í sölu á sumarhúsum
Allt stefnir í að sala á sumarhúsum verði sú minnsta í sex ár, segir Páll Pálsson fasteignasali, sem sækir tölur í kaupverðsjá Húsnæðis-, mannvirkja- ...
„For­maður Sjálf­stæðis­flokks að búa til upp­lýsingaóreiðu“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
„For­maður Sjálf­stæðis­flokks að búa til upp­lýsingaóreiðu“ - Vísir
Hann var spurður almennt um viðbrögð hjá þingflokki og svaraði því einlæglega að vonbrigði hefðu verið einkennandi. „En við erum náttúrlega í ríkisstj...
Karl og Vilhjálmur sagðir einhuga um framtíð Harry innan konungsfjölskyldunnar - „Enginn vafi á því“
📅 16.11.2026 👁️ 3
Karl og Vilhjálmur sagðir einhuga um framtíð Harry innan konungsfjölskyldunnar - „Enginn vafi á því“
Karl III Bretakonungur og Vilhjálmur Bretaprins munu vera á einu máli um framtíð yngri prinsins, Harry, og eiginkonu hans innan bresku konungsfjölskyl...
Gagnrýnir uppsagnir hjá Hafnarfjarðarbæ og spyr hvort hljóð og mynd fari saman
📅 16.11.2026 👁️ 5
Gagnrýnir uppsagnir hjá Hafnarfjarðarbæ og spyr hvort hljóð og mynd fari saman
Nýlega lagði bæjarráð Hafnarfjarðar niður 23 störf sem samsvara 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðið annað starf hjá bænum og nemur því ...
Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“
📅 16.11.2026 👁️ 3
Hjóla í Ingvar eftir vistaskiptin - „Hann greiddi atkvæði í þingsal með nokkrum þeirra mála sem hann gagnrýnir nú“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi og sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar gagnrýna b...
„Brostinn á flótti í stjórnar­liðinu“ - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
„Brostinn á flótti í stjórnar­liðinu“ - Vísir
Ingvar tilkynnti í færslu á Facebook í morgun að hann ætlaði að yfirgefa Viðreisn og ganga frekar í raðir Sjálfstæðismanna. Rétt rúmur mánuður er liði...
Christian Cousins er látinn - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 3
Christian Cousins er látinn - Vísir
Bróðir Cousins, Jonas Roeser, greindi frá andláti Cousins í síðasta mánuði en fjölmiðlar vestanhafs urðu ekki varir við tilkynninguna fyrr en í lok sí...
Næsti James Bond afhjúpaður - „Draumur að rætast“
📅 16.11.2026 👁️ 4
Næsti James Bond afhjúpaður - „Draumur að rætast“
Leikarinn Robert Pattinson, sem er hvað frægastur fyrir að hafa leikið vampíruna Edward í Twilight-þríleiknum og ofurhetjuna Batman í samnefndri kvikm...
Rétta aftur yfir Clancy á næsta ári - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Rétta aftur yfir Clancy á næsta ári - Vísir
Mál Clancy vakti mikla athygli en henni er gefið að sök að hafa myrt börnin sín þrjú árið 2023 sem voru þá fimm ára, þriggja ára og átta mánaða gömul....
Over 8,000 illegal sexual performance products seized in the Canary Islands
📅 16.11.2026 👁️ 4
Over 8,000 illegal sexual performance products seized in the Canary Islands
The Guardia Civil has seized more than 8,000 products sold to improve sexual performance during an investigation into unauthorised supplements being s...
Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna
📅 16.11.2026 👁️ 4
Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna
Fundur hefur ekki verið boðaður í kjaradeilu Icelandair og flugmanna, segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Flugmenn Icelandair í Félagi íslensk...
Vilja refsa Írönum fyrir ís­skápa­stríðið - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 4
Vilja refsa Írönum fyrir ís­skápa­stríðið - Vísir
Ógrynni matvæla fór til spillis þegar kælar í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi voru hitaðir í allt að fimmtíu gráður yfir nótt. Þrjótarnir sem s...
Þegar trúarsiðum og lagakerfi er ruglað saman
📅 16.11.2026 👁️ 4
Þegar trúarsiðum og lagakerfi er ruglað saman
Lilja Benatov Hjartar skrifar: Nýlega birtist á Facebook pistill sem settur var fram sem almenn fræðslugrein um sharía-lög, skrifuð sem svar við aðsen...
Annir Þor­gerðar séu auð­vitað á­skorun - Vísir
📅 16.11.2026 👁️ 3
Annir Þor­gerðar séu auð­vitað á­skorun - Vísir
Þetta sagði Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í samtali við fréttamenn í ljósi þeirra tíðinda að Ingvar Þóroddsso...
Lindsay Clancy to face retrial for deaths of her three children in March 2027
📅 16.11.2026 👁️ 4
Lindsay Clancy to face retrial for deaths of her three children in March 2027
The 36-year-old's first trial this year fell apart when a 12-person jury failed to reach a verdict.
Ákærður fyrir tilraun til manndráps í leigubíl
📅 16.11.2026 👁️ 3
Ákærður fyrir tilraun til manndráps í leigubíl
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 13. júlí veist með vasahnífi að leigubílstjóra í Reykjavík. Í...
Street cricket with a legend and a metro ride as William and Kate begin India visit
📅 16.11.2026 👁️ 4
Street cricket with a legend and a metro ride as William and Kate begin India visit
The Prince and Princess of Wales are visiting Mumbai for the Earthshot Prize this week, but started their trip with some fun outings.