Í Skrekk fá unglingar í grunnskólum Reykjavíkur á ári hverju að vinna með hugmyndir sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins fyrir hönd síns skóla.
Að þessu sinni tóku 793 unglingar frá 26 skólum þátt. Eftir þrjú undanúrslitakvöld komust atriði frá átta skólum í úrslitin í kvöld. Það voru Klébergsskóli, Breiðholtsskóli, Árbæjaskóli, Langholtsskóli, Hlíðaskóli, Norðlingaskóli, Dalskóli og Sæmundarskóli.
Atriði Árbæjarskóla, Bestu ár ævi þinnar, fjallar um öll þau ráð sem unglingar fá um hvernig best er að haga lífi sínu en að ráðin stangist oft á. Breiðholtsskóli var með atriðið Dulan sem fjallar um örvæntingarfulla móður sem ber út barnið sitt en atriðið sækir innblástur í íslenska vögguvísu og draugasögur. Atriði Langholtsskóla, Frelsinu fögnum, fjallar um heim barna þar sem frelsi og fjölbreytileiki barna er fagnað en að reglur og athugasemdir fullorðinna spilla gleðinni og gleði barnæskunnar týnist.