Hópur nemenda við Menntaskólann í Reykjavík (MR) gagnrýnir harðlega breytingar á námi við skólann. Segja nemendurnir að rektor MR hafi ekki hlustað á mótbárur þeirra og það hafi heldur ekki breytt neinu í þeim að efnum að kennarar við skólann hafi tekið þátt í að andmæla breytingunum. Er þar ekki síst vísað til umdeildra breytinga á námi í latínu sem tóku gildi í haust. Vilja nemendurnir meina að nám við MR hafi verið skert og dregið hafi úr sérstöðu skólans þar sem alltaf hafi verið gerðar ríkari kröfur til nemenda en í flestum öðrum íslenkum framhaldsskólum.
Nemendur við MR hundfúlir - Segja námið hafa verið gengisfellt og gagnrýna rektor harðlega