Hæstiréttur fellir þar úr gildi úrskurð Landsréttar frá því í september þess efnis að allir dómarar í Héraðsdómi Reykjavíkur væru vanhæfir til að dæma í eftirlaunamáli ljósmóður þar sem þeir væru allir félagar í sama lífeyrissjóði.
Landsréttur hafði talið að dómararnir hefðu fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðunni.
Þrátt fyrir að óumdeilt sé að allir dómarar við héraðsdómstólinn séu félagar í A-deild lífeyrissjóðsins benti Hæstiréttur á að sumir þeirra hefðu tekið við starfi eftir að breytingarlögin tóku gildi í júní 2017.
Málið varðar breytingar sem gerðar voru á réttindum félaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins á árinu 2023 sem gerðar voru á grundvelli breytingarlaga nr. 127/2016.
„Þótt úrslit málsins kunni að hafa áhrif á fjárhag A-deildar lífeyrissjóðsins til framtíðar er þýðing þess fyrir lífeyrisréttindi þessara dómara þannig óbein og ófyrirséð,“ segir í dómnum.
Þá segir að ekkert hafi komið fram um að atvik eða aðstæður væru með því móti að fyrir lægi að enginn dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur fullnægði sérstökum hæfisskilyrðum til að fara með málið.